Grjótkast úr glerkastala Björns Vals Gíslasonar 7. ágúst 2010 06:00 Gagnrýni Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG og skipstjóra í leyfi á Alþingi frá Brim hf. á skipun Runólfs Ágústssonar í starf umboðsmanns skuldara er eftirtektarverð í meira lagi. Skipun Runólfs væri hluti af gamla valdatímanum, sem Björn Valur sagðist ekki vilja tilheyra. Björn Valur er skipstjóri í leyfi frá Brim hf., og hefur þegið laun sem slíkur eftir að hann tók sæti á Alþingi. Hver gæti til dæmis gleymt því að Björn Valur skrapp á sjóinn hjá Brim hf. í miðri Icesave deilu Alþingismanna? Þann 28. júlí síðastliðinn sagði Björn Valur í viðtali við fjölmiðla að hann væri þreyttur á þingmennsku og íhugaði að snúa aftur til sjós, þ.e. til starfa hjá Brim hf. eftir árs frí. Þar bíður hans skipstjórastaða er hann snýr til baka úr störfum sínum á Alþingi. Í ljósi ummæla hans um vinnubrögð hins gamla valdatíma þá hljóta spurningar að vakna hjá almenningi um hagsmunatengsl Björns Vals og LÍÚ-stórveldisins Brims hf. Er það hluti af nýjum vinnubrögðum hins nýja valdatíma VG að skipa í nefnd aðila sem hefur beina og sameiginlega fjárhagslega hagsmuni ásamt sínum vinnuveitenda við endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu? Björn Valur hefur þegið í það minnsta 2,5 milljónir króna í laun frá Brim hf. síðan hann tók sæti á Alþingi. Hvernig má það vera að starfsmaður Brims hf. sé skipaður í nefnd sem fjallar um endurskoðun fiskveiðistjórnkerfisins og þar af leiðandi um gífurlega fjárhagslega hagsmuni Brims hf., þaðan sem Björn er í leyfi á meðan hann sinnir þingstörfum? Myndi Björn Valur fórna skipstjórastöðu sinni hjá Brim með því að standa við kosningaloforð VG um innköllun kvótans gegn vilja Brims? Eru það ásættanleg og góð vinnubrögð að skipa slíkan augljósan hagsmunaaðila undir fölskum forsendum í mikilvæga nefnd sem fjalla á um mannréttindi, samkeppnisumhverfi og að leita leiða til sátta um fiskveiðistjórnunarkerfið? Svarið er einfalt og svarið er nei. Þessi vinnubrögð hefðu líklega þótt boðleg á hinum gamla valdatíma sem Björn Valur vill þó alls ekki tilheyra. Þau eru ekki boðleg því Björn Valur er vanhæfur sem varaformaður og nefndarmaður í starfshópi sem endurskoðar fiskveiðistjórnunarkerfið. Hann hefur ríkra fjárhagslegra hagsmuna að gæta sem starfsmaður Brims hf. og er í raun umboðslaus af hálfu VG í nefndinni þar sem hann hefur sjálfur sagt í fjölmiðlum að hann geti ekki stutt áform um innköllun kvótans og endurúthlutun á grundvelli jafnræðissjónarmiða, það verði fara aðrar leiðir þegar kemur að endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Þar með segir Björn Valur að hann geti ekki fylgt eftir stefnu flokks síns í sjávarútvegsmálum og sínum eigin loforðum frá því fyrir kosningar. Hann fylgir aftur á móti stefnu og hagsmunum vinnuveitanda síns Brims hf. með sóma, enda fór hann inn í nefndina á forsendum VG en ákvað í miðri á að skipta um hest og þjóna hagsmunum LÍÚ og vinnuveitanda síns Brims hf. enda liggja fjárhagslegir hagsmunir hans og Brims hf. saman. Björn Valur á að sjá sóma sinn í að segja af sér sem varaformaður endurskoðunarnefndar um stjórnun fiskveiða og víkja um leið sem nefndarmaður. Samhliða því ætti Björn Valur að íhuga alvarlega stöðu sína sem þingmaður. Nauðsynlegt er að byggja upp traust almennings á Alþingi og stjórnkerfinu í heild eftir efnahagshrunið. Skipun Björns Vals í umrædda nefnd er ekki til þess fallin að byggja upp traust, þvert á móti þá liggur af henni svo megn óþefur að jafnvel þeir dauðu myndu grípa fyrir vit sér. Það blasir við. Björn Valur vill ekki sjá þær aðferðir sem einkenna gamla valdatímann, nema þá auðvitað að hann stundi þær sjálfur. Björn Falur ætti að varast að kasta grjóthnullungum úr glerhúsi sínu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar