Sigurganga Füchse Berlin heldur áfram Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. desember 2010 20:59 Dagur Sigurðsson. Nordic Photos / Bongarts
Füchse Berlin fagnaði í kvöld enn einum sigrinum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta og minnkaði muninn í topplið Hamburg aftur í þrjú stig. Füchse Berlin vann Lübbecke, 27-22, eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 11-11. Lübbecke hafði frumkvæðið framan af í síðari hálfleik og var með þriggja marka forystu, 18-15, þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Þá tók Austurríkismaðurinn Konrad Wilczynski til sinna mála og jafnaði metin fyrir Füchse Berlin með þremur mörkum á tveimur mínútum. Lærisveinar Dags Sigurðssonar tóku öll völd í leiknum eftir þetta og unnu öruggan sigur. Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrir refina frá höfuðborginni en Þórir Ólafsson var markahæstur í liði Lübbecke með sjö mörk. Füchse Berlin er í öðru sæti deildarinnar með 32 stig, þremur á eftir Hamburg sem fyrr segir. Kiel er svo í þriðja sætinu, einu stigi á eftir Füchse Berlin, eftir öruggan sigur á Rheinland á heimavelli í kvöld, 33-23. Aron Pálmarsson, sem skrifaði undir nýjan samning við Kiel í kvöld, skoraði eitt mark í leiknum. Íslendingunum í Rheinland líður greinilega vel í leikjum gegn Kiel en Sigurbergur Sveinsson skoraði sex mörk í kvöld og Árni Þór Sigtryggsson fimm. Hannover-Burgdorf, lið Arons Kristjánssonar, tapaði fyrir Melsungen á heimavelli í kvöld, 35-30. Hannes Jón Jónsson og Vignir Svavarsson skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Burgdorf en Ásgeir Örn Hallgrímsson ekkert. Wetzlar vann góðan sigur á Grosswallstadt, 24-18. Kári Kristján Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Wetzlar en Sverre Jakobsson lék í vörn Grosswallstadt í leiknum.
Mest lesið Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Hvolfdu kamri, skölluðu Víking og voru piparúðaðir út Fótbolti Á Tryggvi Guðmundsson kannski enn markametið? Íslenski boltinn Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti „Algjörlega óásættanlegt“ og stuðningsmennirnir verða settir í bann Fótbolti Sjáðu mörkin sem gerðu stuðningsmenn Bröndby alveg bandbrjálaða Fótbolti Sterkasti maður Íslands 2025: Hafþór Júlíus ætlar að vinna í tólfta sinn Sport Þýsk fótboltagoðsögn dæmd í fangelsi Fótbolti Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Enski boltinn Samdi við kríuna um að koma sér á brott Golf Fleiri fréttir Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti