Bæjarstjóri Vestmannaeyja: „Látið okkur í friði, það er okkar eina bón“ 21. janúar 2010 21:15 Elliði Vignisson. Mynd úr safni.
Bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, segir það einu bón þeirra, sem að sjávarútveginum koma, að ríkisstjórnin láti þau í friði. „Látið okkur í friði, það er okkar eina bón," sagði Elliði á baráttufundinum sem var haldinn í Höllinni í Vestmannaeyjum en nærri fimmhundruð manns, eða 10 prósent af íbúum eyjarinnar, mættu á fundinn. Elliði gerði meðal annars að umtalsefni að mikil fólksfækkun hefði orðið í Vestmannaeyjum. Þegar væru um þúsund manns búnir að flytja frá eyjum. Hann sagði marga útskýringar liggja þar að baki, ein þeirra væri ímyndavandi sjávariðnaðar á Íslandi. Hann sagði ungu kynslóðina líta á sjávariðnað sem starf forfeðranna. Það væri eingöngu nýlegt sjónarmið ungs fólks að sjávarútvegurinn væri grunnstoð atvinnugreina á Íslandi. „Þá er áhyggjuefni að ungt fólk er hinsvegar ekki tilbúið að starfa í sjávarútvegi," sagði Elliði og kenndi þar um ranghugmyndum sem fjölmiðlar og stjórnmálamenn hafi haldið að ungu kynslóðinni. Hann sagði ennfremur að það væri ólíðandi ábyrgðarleysi að stjórnvöld réðust á þessa undirstöðugrein og það á sama tíma og íbúar Íslands berjist við alvarlegustu efnahagskreppu sem þjóðin hafi staðið frammi fyrir. Hann sagði að íbúar Vestmannaeyja yrðu að verjast með oddi og eggi í þessari umræðu varðandi fyrningaleið stjórnvalda en yfirskrift fundarins var einmitt: Fyrnum fyrningaleiðina. Fundinum lauk svo rétt rúmlega níu þegar ályktun var borin undir fundinn. Þar var þess meðal annars krafist að fallið yrði frá áformum um fyrningaleiðina auk þess sem útflutningsálagi á ísfiski yrði aflétt og hætt yrði við afnema sjómannaafsláttinn. Ályktunin var samþykkt með lófaklappi. Hér má lesa ályktunina í heild sinni: Almennur baráttufundur íbúa í Vestmannaeyjum, 21. janúar 2010, krefst þess að stjórnvöld falli þegar í stað frá áformum um svokallaða fyrningarleið í sjávarútvegi, enda er hún í eðli sínu aðför að starfsgrundvelli fyrirtækja í sjávarútvegi og þar með að lífskjörum og atvinnuöryggi fólks sem í atvinnugreininni starfar. Fundurinn krefst þess jafnframt að fallið verði frá útflutningsálagi á ísfiski og afnámi sjómannaafsláttar, enda er með slíkum ráðstöfunum verið að skerða kjör þeirra sem málið varðar umfram það sem landsmenn verða að þola nú um stundir vegna efnahagssamdráttar í samfélaginu. Boðað var til baráttufundarins undir yfirskriftinni Fyrnum fyrningarleiðina! Fundarboðendur voru meðal annars félög sjómanna, skipstjórnarmanna, útvegsmanna og vélstjóra, auk Vestmannaeyjarbæjar. Þetta segir allt sem segja þarf um sterka og víðtæka samstöðu Eyjamanna gegn áformum um fyrningarleiðina, þar með talið er svokallað skötuselsfrumvarp á Alþingi. Íslenskt samfélag þarf síst á því að halda nú að höggvið sé að rótum sjávarútvegsins, þeirrar atvinnugreinar sem öðrum fremur skapar þjóðinni gjaldeyristekjur, stöðugleika og atvinnu landið um kring. Fiskveiðistjórnarkerfið er vissulega umdeilt og það er ekki fullkomið frekar en önnur mannanna verk. Það er hins vegar og verður sameiginlegt verkefni stjórnmálamanna, og þeirra sem hagsmuna eiga að gæta, að fjalla sameiginlega um hugsanlegar breytingar á kerfinu í stað þess að stjórnvöld birti einhliða stríðsyfirlýsingar í garð fólks og fyrirtækja í atvinnugreininni. Núna þarf sjávarútvegurinn fyrst og fremst á starfsfriði að halda til að unnt sé að efla hann og styrkja enn frekar þannig að hann standi örugglega undir því hlutverki sem honum er ætlað í þjóðarbúinu og við uppbyggingu samfélagsins eftir bankahrunið.
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Fleiri fréttir Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Sjá meira