Nýtt framboð Bjarni Gíslason skrifar 3. nóvember 2010 06:00 Fermingarbörn hafa boðið sig fram. Ekki til stjórnlagaþings, ekki til Alþingis heldur til að hjálpa náunga sínum í Afríku. Þau hafa ekki boðað til funda og umræðna, til stefnumörkunar og áætlana um hvað skal gera í framtíðinni heldur framkvæma þau strax. Fermingarbörn um allt land munu 1.-9. nóvember banka upp á hjá landsmönnum og leita eftir stuðningi við vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku. Þau banka upp á og kynna stefnumál sitt, að hjálpa jafnöldrum sínum í Afríku sem margir hverjir hafa ekki aðgang að hreinu vatni. Síðan bjóða þau þér að gera eitthvað í málinu með því að leggja þitt af mörkum í merkta og innsiglaða bauka frá Hjálparstarfinu. Mörg fermingarbarnanna hafa hlustað á Stephen og Charity, góða gesti frá Úganda sem hafa sagt frá lífi sínu og uppvexti, hvernig þau urðu bæði munaðarlaus vegna þess að foreldrar þeirra dóu úr alnæmi. Erfiðri lífsbaráttu þar sem vatn og matur var af skornum skammti og hvernig stuðningur í gegnum vatnsverkefni Hjálparstarfsins hefur gefið von og bætt aðstæður til muna. „Þau eru svo elskuleg og áhugasöm," sagði Charity um fermingarbörnin „og ótrúlega fórnfús og umhugað um að koma jafnöldrum sínum í fjarlægri álfu til hjálpar. Ég er lifandi dæmi um árangurinn. Án stuðnings Hjálparstarfs kirkjunnar væri ég enn þá fátæk ómenntuð stúlka með litla möguleika til betra lífs. En í dag er ég í háskólanámi og vonast eftir góðu starfi og þar með betra lífi fyrir mig og yngri systkini mín sem ég ber ábyrgð á." Tökum framboði fermingarbarnanna vel, þau eru traustsins verð, styðjum stefnumál þeirra og leggjum okkar af mörkum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Fermingarbörn hafa boðið sig fram. Ekki til stjórnlagaþings, ekki til Alþingis heldur til að hjálpa náunga sínum í Afríku. Þau hafa ekki boðað til funda og umræðna, til stefnumörkunar og áætlana um hvað skal gera í framtíðinni heldur framkvæma þau strax. Fermingarbörn um allt land munu 1.-9. nóvember banka upp á hjá landsmönnum og leita eftir stuðningi við vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku. Þau banka upp á og kynna stefnumál sitt, að hjálpa jafnöldrum sínum í Afríku sem margir hverjir hafa ekki aðgang að hreinu vatni. Síðan bjóða þau þér að gera eitthvað í málinu með því að leggja þitt af mörkum í merkta og innsiglaða bauka frá Hjálparstarfinu. Mörg fermingarbarnanna hafa hlustað á Stephen og Charity, góða gesti frá Úganda sem hafa sagt frá lífi sínu og uppvexti, hvernig þau urðu bæði munaðarlaus vegna þess að foreldrar þeirra dóu úr alnæmi. Erfiðri lífsbaráttu þar sem vatn og matur var af skornum skammti og hvernig stuðningur í gegnum vatnsverkefni Hjálparstarfsins hefur gefið von og bætt aðstæður til muna. „Þau eru svo elskuleg og áhugasöm," sagði Charity um fermingarbörnin „og ótrúlega fórnfús og umhugað um að koma jafnöldrum sínum í fjarlægri álfu til hjálpar. Ég er lifandi dæmi um árangurinn. Án stuðnings Hjálparstarfs kirkjunnar væri ég enn þá fátæk ómenntuð stúlka með litla möguleika til betra lífs. En í dag er ég í háskólanámi og vonast eftir góðu starfi og þar með betra lífi fyrir mig og yngri systkini mín sem ég ber ábyrgð á." Tökum framboði fermingarbarnanna vel, þau eru traustsins verð, styðjum stefnumál þeirra og leggjum okkar af mörkum.
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar