Lýður yfirheyrður 27. janúar 2010 12:07 Lýður og bróðir hans Ágúst munu hafa verið staddir í Bretlandi þegar aðgerðirnar hófust í gær, en eru nú komnir til landsins. Samkvæmt heimildum er Lýður í yfirheyrslu þessa stundina. Mynd/GVA
Yfirheyrslur á vegum embættis sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á málefnum Exista standa nú yfir. Lýður Guðmundsson, annar Bakkavarabræðranna, mætti til yfirheyrslu klukkan ellefu í morgun. Þá kom fram í hádegisfréttum RÚV að bróðir hans Ágúst hefði einnig verið yfirheyrður í morgun. Húsleitir fóru fram á tólf stöðum í gær í Reykjavík og London í tengslum við rannsóknina. Embætti sérstaks saksóknara rannsakar fimm atriði, sem öll varða ákvarðanir sem teknar voru af hálfu forsvarsmanna Exista skömmu fyrir og eftir bankahrun 2008. Meðal þess sem er til rannsóknar er niðurfelling persónulegra ábyrgða á lánum sem veitt voru við kaup starfsmanna Exista á hlutabréfum í félaginu. Forstjórar Existu tóku ákvörðun um niðurfellinguna skömmu eftir bankahrun, en þeir voru sjálfir með slík lán. DV segir frá því í dag að heildarupphæð lánanna sé 1,2 milljarður. Auk þess er til rannsóknar yfirfærsla hlutabréfa Sigurðar Valtýssonar, annars forstjórans, í félag á Tortóla skömmu fyrir hrun og tilkynning um hlutafjáraukningu í félaginu Exista um 50 milljarða. Þá er sala Existu á Bakkavör til bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssona til skoðunar. Til rannsóknar eru ætluð brot gegn almennum hegningarlögum og hlutafélagalögum. Lýður og bróðir hans Ágúst munu hafa verið staddir í Bretlandi þegar aðgerðirnar hófust í gær, en eru nú komnir til landsins. Samkvæmt heimildum er Lýður í yfirheyrslu þessa stundina.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira