Hinir eiga að sýna ábyrgð Jakobína Ingunn Ólafsdóttir og stjórnmálafræðingur skrifa 18. september 2010 11:07 Umræðan undanfarin tvö ár gefur tilefni til þess að velta fyrir sér vinnubrögðum á fjölmiðlun og hvernig fjölmiðlarnir fjalla um málefni sem varða fortíðina, líðandi stund en einnig framtíð þjóðarinnar. Þetta spjall leiðir hugan að túlkun almennt og það rót sem við verðum vitni að í samtímanum. Það má segja að hagsmunaöfl berjist um að fá að segja söguna, túlka atburðarrásina og stýra því hvaða hugmynd almenningur gerir sér af ástandinu. Mörg okkar horfa fremur ráðvillt upp á umræðuna sem á sér stað í samfélaginu og málflutning í fjölmiðlum. Við spyrjum okkur hverjir það eru sem fá að hafa orðið eftir bankahrun og hvernig þeir fara með það vald. Ríkisútvarpið sendir mönnum nauðungaráskrift sem ætti að spegla skyldu þess til þess að endurspegla hagsmuni sem flestra í umfjöllun sinni. Þar eru þó mestmegnis útvaldir sem fá að tala fyrir hagsmunum valdablokka en fórnarlömb gerræðislegs stjórnarfars fá litla athygli, rödd þeirra þögguð og málefni þeirra lítt reyfuð. Umræðan og málflutningur ýmissa stjórnmálamanna eða túlkun þeirra og framsetning á veruleikanum þætti lítt sæmandi í ríkjum þar sem gæði og magn menntunar er almennt meiri en á Íslandi. Fjölmiðlar og stjórnmálamenn vísa gjarnan til þjóðarinnar sem vel menntaðrar en það hefur þó verið vel kortlagt að brottfall úr námi er meira og menntunarstig á Íslandi er mun lakara í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Þetta væri þó hægt að umbera ef áhersla væri lögð í meiri mæli á gæði menntunar og innihald hennar stæðist betur kröfur samtímans. Stjórnmálamenn virðast treysta á dómgreindarleysi almennings og gagnrýnislausa meðhöndlun fjölmiðla þegar þeir flytja mál sitt. Formaður Sjálfstæðisflokksins vill ekki að einkavæðing bankanna verði rannsökuð eða að ráðherrar sæti ábyrgð. Forsætisráðherran telur að nýútkomi skýrsla sé áfellisdómur yfir stjórnmálamönnum, stjórnkerfi, stjórnsýslu og fjármálakerfi. Eigi að síður virðist forsætisráðherrann ekki koma auga á að það sé í mótsögn að tveir ráðherrar úr hrunstjórninni séu enn á ráðherrastólum. Hinir svokölluðu hrunkvöðlar eða útrásarvíkingar fá síendurtekið drottningarviðtöl í ljósvaka- og pappírsfjölmiðlum þar sem þeir bera af sér sakir og benda á ábyrgð annarra en ofbjóða jafnframt réttlætisvitund almennings. Það sama á við um stjórmálamenn en þó sér í lagi forystu sjálfstæðisflokksins þar sem nánast hvert sæti er skipað einstaklingum sem annað hvort tengjast innherjasvikum, þjófnaði eða óeðlilegri fyrirgreiðslu í aðdraganda hruns en ennfremur er forysta Sjálfstæðisflokksins höfundur að fyrirkomulagi sem leiddi til gjaldþrots þjóðarbúsins. Eins og fyrr segir þá horfa margir upp á þetta nokkuð ráðvilltir en aðrir loka sig af og leita skjóls fyrir ástandinu. Stóra spurningin er þó hvers vegna þetta ástand er ekki brotið upp en ábyrgðin á samfélagsbreytingum virðist hafa verið færð á hendur rannsóknarnefnda sem eiga að birta einhverskonar alternatívan sannleika við þann sem keyrt er með í fjölmiðlum og á vettvangi stjórnmálanna. Jafnhliða því að forsætisráðherrann talar um áfellisdóm í skýrslu eru lög keyrð í gegnum þingið sem kveða á um áframhaldandi samtvinnun viðskipta og stjórnmála með heimild fyrir peningagjöfum af hálfu fyrirtækja sem vilja tryggja sérhagsmuni sem eiga litla samleið með velferð kjósenda. Umræða um vald og áhrif alþjóðagjaldeyrissjóðinn eru að mestu þögguð niður. Neyðarástand á heimilum skuldara fær litla athygli. Þegar á reynir setja stjórnmálamenn sig gegn því að þjóðin hafi aðkomu að mikilvægum málefnum. Þetta er einfaldlega Ísland í dag. Það er ekki fallegt en hvers vegna þarf að fela það? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson Skoðun Stingum af Einar Guðnason Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Stingum af Einar Guðnason skrifar Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason skrifar Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson skrifar Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verðmæti dýra fyrir jörðina er ekki mælanlegt í krónum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Staða eldri borgara á Íslandi í árslok 2025 Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Landhelgisgæslan er óábyrg Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Kristinn Árni Hróbjartsson skrifar Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson skrifar Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar