Jón Erlendsson: Ófagleg vinnubrögð Jón Erlendsson skrifar 25. maí 2010 13:56 Á fundi stjórnar Fasteigna Akureyrar, þeim síðasta á kjörtímabilinu föstudaginn 21. maí s.l., samþykkti meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, með fulltingi Framsóknarflokksins, að hönnunarsamninga vegna nýs hjúkrunarheimilis í Naustahverfi skuli gera án almenns útboðs. Gera á verðfyrirspurn til nokkurra þóknanlegra aðila á Akureyri og semja svo við þá eftir hendinni um hina ýmsu verkþætti hönnunarinnar. Áætlað er að byggingarkostnaður hjúkrunarheimilisins verði um 1600 Mkr. Þar af má gera ráð fyrir að hönnunarkostnaður verði 80-100 Mkr. Þessi gjörningur er brot á Innkaupareglum Akureyrarbæjar eins og viðkomandi stjórnarmönnum Fasteigna er vel kunnugt, enda tóku þeir sumir hverjir sjálfir þátt í að semja þær á sínum tíma. Rökin sem fram eru færð þessu gerræði til varnar eru: 1) Ekki er tími til að fara að réttum reglum vegna þess að framkvæmdir þarf að hefja sem fyrst. 2) Eftir opið útboð gæti farið svo að semja yrði við menn sem ekki eru Akureyringar. Það er skemmst frá því að segja undirritaður fulltrúi VG í stjórn FAK trúði varla sínum eigin eyrum og þurfti að láta segja sér tvisvar þegar fyrir lá að bæjarfulltrúar meirihlutans ætluðu að enda kjörtímabilið í þvílíkri hyldýpislægð lágkúrunnar. Það er alveg sama frá hvaða hlið málið er skoðað, það er frá öllum sjónarhornum séð óverjandi og allar þær reglugreinar, skráðar og óskráðar, sem það stendur gegn, yrði hér of langt upp að telja. Hugtakið "verslunarfrelsi" verður hér eitt látið duga, og sjálfstæðismönnum bent á að rifja upp fyrir sér hvað það orð þýðir, eins tamt og það hefur verið þeim á tungu - frelsið er ekki aðeins til að skara eld að eigin köku. Auðvitað gengur ekki að útiloka arkitekta- og verkfræðistofur utan Akureyrar frá því að bjóða í verk hér í bænum, enda myndu þau vinnubrögð, ef almenn væru, bitna harðast á okkar eigin fólki þegar kemur að verkum annarsstaðar. Eins og geta má nærri greiddi VG atkvæði á móti þessum gjörningi, enda skýrt í stefnuskrá flokksins að bjóða eigi út slík verk á opnum útboðsmarkaði og fara eigi í hvívetna að reglum um opinber innkaup og Innkaupastefnu Akureyrar. Öðruvísi verður sú faglega, heiðarlega og lýðræðislega stjórnsýsla sem nú er kallað eftir í íslensku samfélagi ekki tryggð. Jón Erlendsson, stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar fyrir VG og skipar 4 sæti á lista hreyfingarinnar fyrir komandi kosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Á fundi stjórnar Fasteigna Akureyrar, þeim síðasta á kjörtímabilinu föstudaginn 21. maí s.l., samþykkti meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, með fulltingi Framsóknarflokksins, að hönnunarsamninga vegna nýs hjúkrunarheimilis í Naustahverfi skuli gera án almenns útboðs. Gera á verðfyrirspurn til nokkurra þóknanlegra aðila á Akureyri og semja svo við þá eftir hendinni um hina ýmsu verkþætti hönnunarinnar. Áætlað er að byggingarkostnaður hjúkrunarheimilisins verði um 1600 Mkr. Þar af má gera ráð fyrir að hönnunarkostnaður verði 80-100 Mkr. Þessi gjörningur er brot á Innkaupareglum Akureyrarbæjar eins og viðkomandi stjórnarmönnum Fasteigna er vel kunnugt, enda tóku þeir sumir hverjir sjálfir þátt í að semja þær á sínum tíma. Rökin sem fram eru færð þessu gerræði til varnar eru: 1) Ekki er tími til að fara að réttum reglum vegna þess að framkvæmdir þarf að hefja sem fyrst. 2) Eftir opið útboð gæti farið svo að semja yrði við menn sem ekki eru Akureyringar. Það er skemmst frá því að segja undirritaður fulltrúi VG í stjórn FAK trúði varla sínum eigin eyrum og þurfti að láta segja sér tvisvar þegar fyrir lá að bæjarfulltrúar meirihlutans ætluðu að enda kjörtímabilið í þvílíkri hyldýpislægð lágkúrunnar. Það er alveg sama frá hvaða hlið málið er skoðað, það er frá öllum sjónarhornum séð óverjandi og allar þær reglugreinar, skráðar og óskráðar, sem það stendur gegn, yrði hér of langt upp að telja. Hugtakið "verslunarfrelsi" verður hér eitt látið duga, og sjálfstæðismönnum bent á að rifja upp fyrir sér hvað það orð þýðir, eins tamt og það hefur verið þeim á tungu - frelsið er ekki aðeins til að skara eld að eigin köku. Auðvitað gengur ekki að útiloka arkitekta- og verkfræðistofur utan Akureyrar frá því að bjóða í verk hér í bænum, enda myndu þau vinnubrögð, ef almenn væru, bitna harðast á okkar eigin fólki þegar kemur að verkum annarsstaðar. Eins og geta má nærri greiddi VG atkvæði á móti þessum gjörningi, enda skýrt í stefnuskrá flokksins að bjóða eigi út slík verk á opnum útboðsmarkaði og fara eigi í hvívetna að reglum um opinber innkaup og Innkaupastefnu Akureyrar. Öðruvísi verður sú faglega, heiðarlega og lýðræðislega stjórnsýsla sem nú er kallað eftir í íslensku samfélagi ekki tryggð. Jón Erlendsson, stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar fyrir VG og skipar 4 sæti á lista hreyfingarinnar fyrir komandi kosningar.
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar