Lífið

Vill að Brangelina ættleiði barn

Hefur hvatt vini sína, Brad Pitt og Angelinu Jolie, til að ættleiða barn frá Haítí. nordicphotos/afp
Hefur hvatt vini sína, Brad Pitt og Angelinu Jolie, til að ættleiða barn frá Haítí. nordicphotos/afp

Söngvarinn Wyclef Jean hefur hvatt vini sína, leikaraparið Brad Pitt og Angelinu Jolie, til að ættleiða barn frá Haítí.

Pitt og Jolie eiga þrjú ættleidd börn og þrjú börn sem þau eignuðust sjálf og vill Wyclef að þau bæti einu í viðbót frá heimalandi sínu í sarpinn.

„Brad og Angie, geriði það! Ættleiðið barn frá Haítí,“ sagði Wyclef en mikill jarðskjálfti gekk yfir landið í janúar. Skömmu síðar gáfu Pitt og Jolie eina milljón dollara til hjálparstarfsins í gegnum samtökin Læknar án landamæra.

„Ég á marga fræga vini sem hafa stutt málstað okkar mikið. Okkar verkefni er að hjálpa þessum krökkum og gefa þeim aukin tækifæri. Ef við hlúum að þeim þá líður þeim betur á morgun,“ sagði Wyclef, fyrrum liðsmaður Fugees.

Pitt og Jolie hafa áður látið hafa eftir sér að barn frá Haítí sé ekki á dagskránni hjá þeim. „Ég er alltaf opin fyrir börnum víða að úr heiminum. Við erum þannig fjölskylda. Ég og Brad tölum um svona hluti. En við erum ekki að spá í þetta núna,“ sagði Angelina skömmu eftir jarðskjálftann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×