Ólafur: Ætlum að vinna þá á morgun Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. apríl 2010 22:26 „
Þetta var mjög jákvæður leikur. Það var mikilvægt að ná muninum í fimm mörk fyrir hlé. Svo héldum við áfram að mjatla í síðari hálfleik," sagði Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði eftir jafnteflisleikinn gegn Frökkum í Höllinni í kvöld. „Það má kannski segja varðandi þá að þeir skiptu um markvörð og hinn hefði hugsanlega varið meira. Samt ekki því þeir eru nánast með 110 kg í menn í hverri stöðu og hreyfanlegri mann fyrir utan hægra megin. Þetta er því alltaf hörkulið og við erum mjög glaðir með hafa tekið jafntefli út úr þessum leik. „Þetta var jákvætt skref í rétta átt og við lærum af því að spila við þá í hvert skipti. Rétt eins og gegn Spáni fyrir Ólympíuleikana. Þá spiluðum við fimm sinnum við þá og töpuðum fjórum sinnum. Lærðum samt af leikjunum og það skilaði sér í Peking. Því fleiri leiki sem við fáum gegn Frökkum því betra," sagði Ólafur sposkur en hann átti stórleik í kvöld og vonast til þess að geta spilað álíka mikið í leiknum á morgun. „Ég er í góðu formi og var svo að prófa nýja skó í kvöld, Asics. Þeir virkuðu mjög vel á mig," sagði Ólafur og tók fram að hann væri ekkert að auglýsa nýja samning. „Ég hef aldrei viljað gera skósamning heldur prófa það sem ég vill hverju sinni." Liðin mætast að nýju í Höllinni á morgun klukkan 16.00 og Ólafur segir að liðið ætli að reyna að gera enn betur þá. „Við ætlum að reyna að vinna þá á morgun. Þeir spila kannski með annað lið því þetta eru svolitlir kóngar. Sjáum hvað setur," sagði Ólafur og glotti.
Íslenski handboltinn Mest lesið Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira