Guðjón Valur: Það var fínt á bekknum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 26. janúar 2010 18:05 Guðjón Valur á ferðinni í dag. Mynd/DIENER
Guðjón Valur Sigurðsson tók að sér nýtt hlutverk í dag. Hann sat á bekknum síðustu 35 mínútur leiksins en hann spilar venjulega hverja einustu mínútu í leikjum Íslands. „Það var bara fínt á bekknum,“ sagði Guðjón Valur í léttum tón. „Það hefur svo sem aldrei verið neitt markmið hjá mér að spila allar mínútur. Ég reyni bara að spila eins vel og ég get þegar ég er inn á vellinum.“ Sturla Ásgeirsson átti frábæra innkomu í íslenska liðið og skoraði fimm mörk úr fimm skotum. „Það var frábært að sjá hvað Sturla var góður eins og í raun allir leikmenn íslenska liðsins. Það er gaman að sjá hvað liðið virkar vel.“ „Þetta var líka kannski fyrsti leikurinn sem Guðmundur leyfir sér að skipta inn á fleiri leikmönnum. Hann vildi gefa leikmönnum ákveðið öryggi þó svo að það hafi ekki allt gengið upp. En það var ánægjulegt að sjá strákana fá tækifærið.“ Eftir frábæran fyrri hálfleik gaf Ísland örlítið eftir í varnarleiknum í þeim síðari en Guðjón Valur sagði að það hefði ekki verið ætlunin. „Við ætluðum að keyra duglega á þá og vinna seinni hálfleikinn líka. En það er erfitt þegar það er liðið langt á mótið og við með unninn leik í höndunum.“ „En þó svo að markvörðurinn þeirra, sem mér fannst þeirra besti leikmaður, hafi varið mörg skot fannst mér mjög ánægjulegt að sjá hvað við vorum duglegir að hirða fráköstin.“ „Maður þarf nefnilega oft að vinna sér inn að ná þessum fráköstum og það á líka við í vörninni. Það hefst aðeins með mikilli vinnu og baráttu.“ „Við klúðruðum þó nokkuð af færum en við fengum þó þessa seinni sénsa sem þeir fengu ekki.“
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira