Toppliðin unnu öll í Þýskalandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2010 09:35 Snorri Steinn Guðjónsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Daníel
Lítið breyttist í toppbaráttu þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta um helgina nema að Rhein-Neckar Löwen og Göppingen eru nú í mjög góðri stöðu í baráttunni um síðustu Evrópusætin. Gummersbach tapaði fyrir Flensburg, 34-25, á laugardaginn og er nú þremur stigum á eftir Göppingen og fjórum á eftir Rhein-Neckar Löwen þegar þrjár umferðir eru eftir. Um leið styrkti Flensburg stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar og er líklega á leið í Meistaradeildina ásamt toppliðum Hamburg og Kiel. Göppingen og Löwen verða að láta sér EHF-bikarkeppnina að góðu á næsta tímabili. Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Flensburg í leiknum og Róbert Gunnarsson tvö fyrir Gummersbach. Efstu fimm lið deildarinnar unnu öll sína leiki um helgina. Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel sem vann Hannover-Burgdorf á útivelli, 32-25. Hannes Jón Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir síðarnefnda liðið. Kiel er enn einu stigi á eftir toppliði Hamburg sem vann Lübbecke á útivelli, 28-25. Þórir Ólafsson skoraði fimm mörk fyrir Lübbecke og Heiðmar Felixsson þrjú. Rhein-Neckar Löwen vann Magdeburg, 35-24. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fimm mörk fyrir Löwene og Ólafur Stefánsson fjögur. Tvö Íslendingalið eru í neðstu tveimur sætum deildarinnar og eiga nú aðeins möguleika á að bjarga sér frá falli með því að komast upp í sextánda og þriðja neðsta sætið sem veitir umspilsrétt um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Dormagen er nú í þriðja neðsta sætinu með þrettán stig en Minden og Düsseldorf eru í neðstu sætunum með tíu stig hvort. Minden tapaði fyrir Lemgo um helgina, 38-24. Vignir Svavarsson skoraði sjö mörk fyrir Lemgo en Gylfi Gylfason sex fyrir Minden. Ingimundur Ingimundarson var ekki í leikmannahópi Minden, né heldur Logi Geirsson hjá Lemgo. Þá tapaði Düsseldorf fyrir Grosswallstadt á heimavelli, 27-19. Sturla Ásgeirsson skoraði eitt mark fyrir fyrrnefnda liðið en Einar Hólmgeirsson ekkert fyrir Grosswallstadt. Önnur úrslit helgarinnar: Wetzlar - Balingen 23-26Göppingen - Dormagen 33-24Füchse Berlin - Melsungen 31-25 - Rúnar Kárason skoraði eitt mark fyrir Füchse Berlin
Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Clark í sérflokki en þarf að byrja snemma eins og Gunnlaugur Árni Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira