Guðmundur: Afskaplega stoltir Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 31. janúar 2010 15:57 Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari. Mynd/DIENER
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagðist vera afskaplega stoltur af þeim árangri sem íslenska landsliðið náði á EM í handbolta sem lauk í dag.Ísland vann í dag sigur á Póllandi, 29-26, í leik um þriðja sæti mótsins.„Annað markmið okkar var að endurskrifa íslenska handboltasögu með því að ná árangri annað stórmótið í röð. Við náðum að fylgja eftir silfrinu á Ólympíuleikunum með verðlaunum hér og við erum afskaplega stoltir af því," sagði Guðmundur.„Hitt markmiðið var að við stefndum hátt. Jafnvel enn hærra. En við erum gríðarlega ánægðir með bronsið."Og hann, eins og allir leikmenn liðsins, minntust sérstaklega á Gunnar Magnússon handboltaþjálfara og aðstoðarmann Guðmundar hjá landsliðinu. Hann þurfti fara aftur til Íslands á miðju móti.„Við ákváðum að tileinka Gunnari og hans fjölskyldu bronsið vegna þess sviplega fráfalls sem varð í hans fjölskyldu. Við vildum gera það á táknrænan hátt," sagði Guðmundur.Hann sagði um leikinn að fyrri hálfleikurinn muni fara í sögubækurnar.„Hann var stórkostlegur. Ég hef ekki oft séð íslenska liðið spila betri vörn," sagði Guðmundur en Ísland var með átta marka forystu eftir fyrri hálfleik, 18-10.„Þetta varð svo gríðarlega erfitt í síðari hálfleik og það varð eitthvað spennufall sem er erfitt að skýra út."„Við vorum líka óheppnir. Markvörðurinn þeirra setur í lás og lokar markinu. Þá keyrðu þeir á okkur og náðu að minnka muninn í eitt mark. Þá gat allt gerst."„En þeir varnartilburðir sem Alexander Petersson sýndi í lokin - hún var stórkostleg. Hún fer í sögubækurnar. Ég hef aldrei séð annað eins."„Svo kom Hreiðar Guðmundsson gríðarlega sterkur inn í markið. Sú skipting skipti miklu máli," sagði sigurreifur Guðmundur landsliðsþjálfari.
Mest lesið Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti Fótbolti Veittist að sautján ára mótherja sínum og hreytti í hann fúkyrðum Rafíþróttir Davíð Smári hættur fyrir vestan Íslenski boltinn Bjór kastað í konu McIlroy: „Þurfti að þola ótrúlegt magn af svívirðingum“ Golf Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn Íslenski boltinn Þrefaldur heimsmeistari í slagsmálum á kebabstað Sport Fyrirliði Bandaríkjanna ver gjammandi stuðningsmennina Golf Sagði áhorfanda að naglhalda kjafti Golf „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Fótbolti Grínisti hættir og biðst afsökunar á að hafa byrjað níðsöngva í garð Rory Golf Fleiri fréttir Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn Íslenski boltinn