Enski boltinn

Milner orðinn leikmaður Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Milner er farinn frá Villa.
Milner er farinn frá Villa.

James Milner er loksins orðinn leikmaður Man. City og Stephen Ireland er genginn í raðir Aston Villa.

Sagan endalausa um Milner fékk farsælan endi í dag þegar skrifað var undir samninga.

Milner skrifaði undir fimm ára samning við City. Talið er að félagið hafi greitt 26 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Milner spilar væntanlega sinn fyrsta leik fyrir City gegn Liverpool næstkomandi mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×