Ríkisendurskoðun óskar upplýsinga um meðferðarheimili Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. nóvember 2010 15:36 Sigríður Ingibjörg Ingadóttir segir mikilvægt að Ríkisendurskoðun fari ofan í saumana á málefnum meðferðarheimila.
Ríkisendurskoðun er byrjuð að rannsaka málefni meðferðarheimila fyrir börn eftir að Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að samið hefði verið við aðstandendur meðferðarheimilisins Árbótar um bætur vegna lokunar heimilisins. Þetta staðfesti Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, í samtali við Vísi. Sveinn segir að embættið hafi skrifað bréf til félagsmálaráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins til að óska eftir gögnum um samninga sem hafi verið gerðir vegna starfsemi meðferðarheimila. Samningurinn sem fjármálaráðuneytið og félagsmálaráðuneytið gerðu við eigendur Árbótar var gerður í óþökk Barnaverndastofu og var töluvert til umræðu í síðustu viku. Félagsmálanefnd Alþingis fjallaði um málefni meðferðarheimilanna í morgun. Á fundinn mættu fulltrúar félagsmálaráðuneytisins, rekstraraðilar meðferðarheimilisins Árbótar og Götusmiðjunnar sem rekin var með samningi við Barnaverndarstofu. Nefndin mun svo hitta fulltrúa Barnaverndastofu síðar. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður félagsmálanefndar, segir að það sé mjög mikilvægt að Ríkisendurskoðun fari ofan í saumana á hvernig samningum við meðferðarheimili og lyktir þeirra hafi verið háttað. Undir það tekur Unnur Brá Konráðsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. „Þetta var ágætis fundur og upplýsandi," segir Unnur Brá um fund félagsmálanefndar í morgun. Hún segist þó telja að könnun Ríkisendurskoðunar mætti vera víðtækari en lagt er upp með.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira