Viðskipti innlent

Ísland með þriðju mestu hækkun Ikea-vístölunnar

Ísland er í þriðja sæti þegar kemur að hækkun Ikea-vísitölunnar milli ára. Ikea-vísitalan hefur hækkað um 15,1% á Íslandi frá því í fyrra.

Þetta kemur fram í frétt á Bloomberg fréttaveitunni. Ikea-vísitalan er samskonar mæling á verðlagsbreytingum og Big Mac vísitala tímaritsins The Economist enda eru sömu vörur seldar í verslunum Ikea um allan heiminn.

Mesta hækkun Ikea-vístölunnar frá í fyrra var í Japan eða um 22,2% en í öðru sæti kemur Singapore með svipaða hækkun og á Íslandi eða 15,3%.

Mesta lækkun á vísitölunni á milli ára varð í Rúmeníu eða 27,6%, önnur mesta lækkunin varð í Grikklandi eða 24,3% og sama prósentulækkun varð á Kýpur.

Ikea-vísitalan hélst óbreytt í tveimur gjaldmiðlum, það er dollurum og pundum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×