Aðeins þrír leikmenn í kvöld hafa spilað áður úrslitaleik um titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2010 16:30 Nick Bradford í baráttu um frákast í oddaleiknum í fyrra. Mynd/Daníel
Það eru aðeins þrír leikmenn í liðum Keflavíkur og Snæfells sem þekkja það að spila hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Það eru Keflvíkingarnir Gunnar Einarsson og Nick Bradford og Snæfellingurinn Pálmi Freyr Sigurgeirsson. Nick Bradford og Pálmi voru báðir með í oddaleiknum í fyrra milli KR og Grindavík og eru því komnir í þessa aðstöðu annað árið í röð. Nick Bradford átti frábæran leik í fyrra og var með 33 stig og 73 prósent skotnýtingu (11 af 15) en það dugði þó ekki til því Grindavík tapaði leiknum 83-84. Pálmi Freyr Sigurgeirsson var aftur á móti í sigurliði KR í þessum leik en hann lék í 18 mínútur í leiknum og var með 3 stig, 2 fráköst og 1 stoðsendingu á þeim. Gunnar Einarsson var í sigurliði Keflavíkur í hreinum úrslitaleik um titilinn á móti nágrönnum sínum í Njarðvík árið 1999. Gunnar var með 13 stig í leiknum og hitti þar úr 3 af 6 þriggja stiga skotum sínum. Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, er í fyrsta sinn að taka þátt í oddaleik um titilinn sem þjálfari en hann spilaði fjóra slíka leiki sem leikmaður og vann þrjá þeirra (1989, 1992 og 2009). Hann er með 11,5 stig að meðaltali í þessum fjórum leikjum. Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var aðstoðarþjálfari KR í fyrra þegar liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir hreinan úrslitaleik á móti Grindavík.
Dominos-deild karla Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Sjá meira