Erlendur sjóður vill greiða 250 milljarða fyrir Iceland Foods Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. október 2010 18:45
Erlendur fjárfestingasjóður vill bjóða 1,4 milljarða punda, jafnvirði 250 milljarða króna, í hlut Landsbankans í Iceland Foods, en þetta eru peningar sem eiga að fara upp í Icesave. Skilanefnd bankans hafnaði tilboði frá Malcolm Walker upp á milljarð punda. Fyrir fjórum mánuðum síðan barst skilanefnd Landsbankans tilboð í 67 prósenta hlut sinn í bresku matvöruverslanakeðjunni Iceland Foods og var tilboðinu synjað, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Sá sem gerði tilboðið er Malcolm Walker, forstjóri og stofnandi fyrirtækisins. Þetta var jafnframt staðfest í tilkynningu af skilanefnd Landsbankans í dag. Iceland Foods var í eigu Baugs og eignarhaldsfélagsins Styttu, bréfin voru veðsett Landsbankanum og gekk skilanefndin að eignunum þegar fyrirtækin fóru í þrot. Um er að ræða langverðmætustu eign skilanefndar Landsbankans. Mikill viðsnúningur varð á rekstrinum eftir að Malcolm Walker settist aftur í forstjórastólinn að áeggjan Baugs árið 2005. Bara á síðasta ári skilaði félagið 135 milljóna punda hagnaði, jafnvirði 23 milljarða króna. Samkvæmt heimildum fréttastofu er annað tilboð að detta inn á borð skilanefndarinnar. Því erlendur fjárfestingarsjóður (e. investment fund) vill bjóða 1,4 milljarða punda í hlutinn í Iceland Foods. Þetta jafngildir 246 milljörðum króna á núverandi gengi. Viðræður hafa staðið yfir milli fjárfestingarsjóðsins og skilanefndarinnar og hafa forsvarsmenn sjóðsins lýst því yfir að þeir séu reiðubúnir að greiða framangreint verð, samkvæmt heimildum fréttastofu, en nafnið á sjóðnum fæst ekki uppgefið. Þá hafa fleiri fyrirtæki sýnt Iceland áhuga. Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans, var ekki í aðstöðu til að veita fréttastofu sjónvarpsviðtal í dag en sagði að skilanefndin hefði orðið vör við mikinn áhuga á Iceland Foods. „Ég tjái mig ekki um einstaka tilboð, hins vegar er alveg klárt að öll tilboð í eignir bankans eru skoðuð. Hins vegar þarf að gæta þess að beita þeim aðferðum við sölu, sérstaklega svona verðmætra eigna, sem eru til þess fallnar að tryggja að sem hæst verð fáist fyrir eignirnar og að sem flestir áhugasamir komi að slíku ferli," segir Lárentsínus. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa samskipti skilanefndarinnar og Walkers verið stirð því Walker vildi í fyrstu ekki afhenda hlutabréfin í Iceland Foods sem áður tilheyrðu eignarhaldsfélaginu Styttu. Voru bréfin ekki afhent fyrr en Walker var gerð grein fyrir því að samskipti við hann yrðu í frostmarki þangað til hann afhenti bréfin og varð hann við því. Lárentsínus segir að samskiptin við Walker séu á góðum nótum í dag. „Samstarfið hefur verið með ágætum þótt það sé ábyggilega ekki óskastaða að vera mjög lengi að eiga fyrirtæki þar sem tæp 70 prósenta eignarhlutur er í eigu íslensks banka sem er í slitaferli," segir Lárentsínus.
Tengdar fréttir Eignir gamla Landsbankans lágt metnar Í lok júní var áætlað verðmæti allra eigna gamla Landsbankans 1.177 milljarðar króna. Þar af var virði dótturfélaga bankans, sem Iceland Foods fellur undir, metið á 83 milljarða króna. Þetta þykir afar varfærið mat, ekki síst með tilliti til tilboðs Malcolms Walker. 7. október 2010 09:35 Staðfestir áhuga Malcolm Walkers á Iceland kaupum Páll Benediktsson upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans hefur staðfest forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag um að Malcolm Walker stofnandi og forstjóri Iceland lágvöruverðskeðjunnar hefði sýnt áhuga á að kaupa félagið. 7. október 2010 10:42 200 milljarða tilboði í Iceland var hafnað Malcolm Walker, stofnandi og forstjóri bresku lágvöruverðskeðjunnar Iceland Foods, gerði tilboð í fyrirtækið fyrir fjórum mánuðum upp á einn milljarð breskra punda, jafnvirði um tvö hundruð milljarða íslenskra króna. Skilanefnd Landsbankans, sem fer með tæplega sjötíu prósenta hlut í Iceland Foods, leit ekki við því, samkvæmt staðfestum heimildum Fréttablaðsins. 7. október 2010 00:01 Mest lesið „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira
Eignir gamla Landsbankans lágt metnar Í lok júní var áætlað verðmæti allra eigna gamla Landsbankans 1.177 milljarðar króna. Þar af var virði dótturfélaga bankans, sem Iceland Foods fellur undir, metið á 83 milljarða króna. Þetta þykir afar varfærið mat, ekki síst með tilliti til tilboðs Malcolms Walker. 7. október 2010 09:35
Staðfestir áhuga Malcolm Walkers á Iceland kaupum Páll Benediktsson upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans hefur staðfest forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag um að Malcolm Walker stofnandi og forstjóri Iceland lágvöruverðskeðjunnar hefði sýnt áhuga á að kaupa félagið. 7. október 2010 10:42
200 milljarða tilboði í Iceland var hafnað Malcolm Walker, stofnandi og forstjóri bresku lágvöruverðskeðjunnar Iceland Foods, gerði tilboð í fyrirtækið fyrir fjórum mánuðum upp á einn milljarð breskra punda, jafnvirði um tvö hundruð milljarða íslenskra króna. Skilanefnd Landsbankans, sem fer með tæplega sjötíu prósenta hlut í Iceland Foods, leit ekki við því, samkvæmt staðfestum heimildum Fréttablaðsins. 7. október 2010 00:01