Hvað á að verða um Álftnesinga? 3. nóvember 2010 06:00 Nú er ár liðið frá því að óskað var eftir að Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga færi í saumana á fjárreiðum Sveitarfélagsins Álftanes og frá áramótum hefur bæjarstjórnin starfað samkvæmt samningi við fjárhaldsstjórn sem sveitarfélaginu var skipuð af ráðherra. Samningurinn rennur út nú í lok október, svo það er ekki furða að spurningin brenni á vörum. Litlar sem engar upplýsingar hafa verið gefnar um gang mála. Af fundargerð bæjarstjórnar, þann 29. júní, má sjá að bæjarstjórn valdi fulltrúa í nefnd sem á að reyna að gera samning við bæjarstjórn Garðabæjar og í framhaldi af því að móta tillögu um sameiningu bæjarfélagana. Af óskýrðum ástæðum ákvað meirihluti bæjarstjórnar að hafna boði Reykvíkinga um viðræður um sameiningamál. Þann 28. september var gerð fyrirspurn á bæjarstjórnarfundi og óskað upplýsinga um hvernig liði undirbúningi að tillögu um sameiningu. Lítið varð um svör, en forseti bæjarstjórnar sagði að vinnan gengi vel og taldi miklar líkur á að tillaga um sameiningu lægi fyrir innan skamms. Þar gætir ósamræmis við álit Garðbæinga, því bæjarstjóri þeirra hafði lýst því yfir í viðtali við RÚV í vikunni áður, 21. september, að hann teldi ekki líklegt að Garðbæingar myndu samþykkja tillögu um sameiningu sveitarfélaganna. Hann sagði litla ástæðu til að efna til kosninga um slíka tillögu nema ríkið kæmi fyrst að málum og létti á skuldbindingum sveitarsjóðs Álftanesinga. Lái þeim hver sem vill, því hvaða hag ættu Garðbæingar að sjá sér í að taka við skuldum Álftnesinga, vitandi að reglulegar tekjur bæjarfélagsins duga ekki fyrir útgjöldum. Þannig hefur það verið í langan tíma og verður áfram nema rekstrarforsendum verði breytt. Eina fyrirliggjandi áætlunin um aðgerðir til að skapa sjálfstæðan rekstrargrundvöll fyrir byggðarlagið gerir ráð fyrir uppbyggingu þjónustukjarna á Álftanesi og að búa í haginn fyrir atvinnu í kringum ferðaþjónustu og fræðslustarfsemi. Hugmyndin er að nýta sérstöðu Álftaness sem felst í spennandi náttúru, miklum tengslum við sögu þjóðarinnar og síðan en ekki síst mannauði og öflugum hópi listamanna í byggðarlaginu. En, svo má spyrja af hverju Garðbæingar ættu að sjá hag af því að styrkja slíka uppbyggingu út á Álftanesi, nú þegar þeir eru að basla við að leysa áform um endurnýjun miðsvæðis byggðarinnar heima fyrir. Kannski er það hvorki hagur Garðbæinga né Álftnesinga að þessi sveitarfélög sameinist. Það er nokkuð augljóst af framansögðu að í nafni hagræðingar munu Álftnesingar frekar missa þá nærþjónustu sem fyrir er á nesinu heldur en að það sé líklegt að hún eflist með sameiningu við Garðabæ. Þó ekki sé langt að fara Álftanesveginn, þá verður það leiðigjarnt að skreppa sí og æ eftir einhverju smáræði, og auk þess kostar það sitt. Í því sambandi er við hæfi að minnast þess að það var fyrir þrýsting frá sveitarstjórn Garðabæjar að dregið var úr ferðum strætisvagna út á nesið, en kostnaður af þeim akstri var að stórum hluta greiddur úr sveitarsjóði Garðbæinga vegna þess að vagninn ekur mestan hluta leiðarinnar innan þeirra sveitarmarka. Fjallað er nánar um þessi mál, staðreyndir og rökstuddar vangaveltur, í skrifum fyrrverandi formanns skipulags- og bygginganefndar á Álftanesi, á http://alftaneshreyfingin.blog.is. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty Skoðun Landhelgisgæslan er óábyrg Vilhelm Jónsson Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen Skoðun Staða eldri borgara á Íslandi í árslok 2025 Björn Snæbjörnsson Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verðmæti dýra fyrir jörðina er ekki mælanlegt í krónum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Staða eldri borgara á Íslandi í árslok 2025 Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Landhelgisgæslan er óábyrg Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Kristinn Árni Hróbjartsson skrifar Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson skrifar Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty Skoðun
Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty Skoðun