Rangtúlkun fjölmiðla Benedikt Jónsson skrifar 10. september 2010 06:00 Það hefur sennilega ekki farið fram hjá mörgum þær fréttir að eldhús Orkuveitu Reykjavíkur sé ekkert nema bruðl og flottræfilsháttur. Starfsfólki eldhússins finnst nauðsynlegt að koma á framfæri leiðréttingu á þessari rangtúlkun. Starfsfólk og aðbúnaðurFyrst ber að leiðrétta að starfsmenn eldhússins eru samtalst 17 en ekki 31 eins og komið hefur fram í fjölmiðlum. Af þessum 17 eru 3 í hlutastarfi. Þessi starfsmannafjöldi skiptist á þrjár starfsstöðvar fyrirtækisins sem eru Nesjavellir, Hellisheiði og Bæjarháls. Meðalfjöldi starfsmanna í hádegismat er 520. Þegar ákveðið var að byggja eldhúsið á sínum tíma var haft að leiðarljósi að Orkuveitan myndi hætta að kaupa tilbúinn bakkamat en í staðinn skyldi allur matur eldaður á staðnum. Það yrði ódýrara, heilnæmara og auðveldara að stjórna gæðunum. Í eldhúsið voru keypt hefðbundin eldhústæki sem voru valin eftir opið útboð Í eldhúsinu er starfrækt vottað gæðakerfi þar sem öllum reglum er framfylgt og önnur sambærileg fyrirtæki hafa haft sem fyrirmynd. Það er því leiðinlegt að umræðan sé þannig að það sé kallað bruðl þegar aðeins er verið að framfylgja lögum um matvælaeftirlit og hollustuhætti. Mikill misskilningur er að þetta sé á einhvern hátt tölvustýrt eldhús. Ofnarnir eru tengdir við HACCP gæðakerfi sem skráir allar aðgerðir, mælir og geymir kjarnhitastig sem er mjög mikilvægt þegar verið er að steikja t.d. kjúkling sem þarf að ná ákveðnu hitastigi við eldun. Ekkert sérstakt bakarí er í eldhúsinu þó svo að öll brauð séu bökuð á staðnum og er það mikill sparnaður. Myndbandið og leiðrétting á misfærslumMyndbandið sem gert var um eldhúsið var að frumkvæði matreiðslumanna sem starfa í eldhúsinu. Mikill áhugi var á meðal fagfólks í matvælaiðnaði að skoða aðstöðuna en erfitt þótti að sýna eldhúsið þar sem takmarkaður aðgangur var leyfður. Það má alveg deila um hvort það hafi verið nauðsynlegt eða ekki að gera myndbandið en tilgangurinn var sá að sýna öðrum fagmönnum hvernig eldhús OR var að gera hlutina. Myndbandið hefur komið mörgum að góðum notum og álíka eldhús verið byggð á fyrirmynd þess, einkum vegna hagræðingar og góðra vinnuhátta. Grænmetisþvottavélin hefur fengið mikla gagnrýni. Það er grundvallarregla við meðhöndlun grænmetis og ávaxta að skola vel upp úr hreinu vatni áður en þess er neytt, minni eldhús geta notast við vask og handvirka salatvindu en í stóreldhúsum eru önnur lögmál. Þetta tæki hefur sparað mörg handtökin. Þeir vinnustaðir sem skola ekki sitt grænmeti bjóða hættunni heim vegna hættu á óæskilegum aðskotadýrum og örverum. Í myndbandinu er sagt frá því að 15.000 gestir hafi þegið veitingar árið 2003. Stór hluti af þessum fjölda er tilkominn vegna vígslu höfuðstöðva fyrirtækisins árið 2003 þegar fyrirtækið var með opið hús fyrir almenning sem taldi 10.200 manns. Aðrir hópar gesta voru t.d grunnskólanemar, háskólanemar, eldri borgarar og starfsfólk sem sótti vikulega deildarfundi. Árið 2009 var þessi fjöldi 3.215 og árið 2010 er fjöldinn óverulegur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 þann 1. september var viðtal við matreiðslumann á veitingastað. Þar bar hann saman eldhúsið sitt og eldhús OR. Ekki er réttlátt að bera saman þessi tvö eldhús þar sem þau þjóna engan veginn sama tilgangi. Eldhús veitingastaða er allt annar flokkur eldhúsa en stór framleiðslueldhús og því á engan hátt hægt að bera saman þessi tvö eldhús vegna ólíkra aðferða. Í sömu frétt er verið að bera saman eldhús OR við skólamötuneyti þar sem einn matreiðslumaður eldar fyrir 500 börn með ófullnægjandi aðstöðu. Vinnuumhverfið í eldhúsum skólanna ætti í raun frekar að vera fréttaefnið. Munurinn á eldhúsi OR og mörgum öðrum er fólgin í því að mikil áhersla er lögð á að maturinn er eldaður frá grunni á staðnum, engir tilbúnir réttir eru aðkeyptir, grænmetið er skorið og eldað á staðnum og áhersla lögð á hollustu og réttar matreiðsluaðferðir. Starfsfólki eldhússins finnst afar dapurt að fjölmiðlar hafi dregið upp þá mynd af eldhúsinu að þar sé bruðlað í aðbúnaði og hráefni þegar meginmarkmið eldhússins hefur alltaf verið að fara eftir reglum um aðbúnað, hagkvæmni og aðferðir. Starfsfólkið telur að þessi góði vinnustaður hafi skaðast vegna rangs og óréttláts fréttaflutnings undanfarinna daga. Það er bæði rangt og óréttlátt að halda því fram að eldhúsið sé það sem mestu skiptir þegar rætt er um slæma fjárhagsstöðu Orkuveitunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Sjá meira
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun