Handbolti

Guðmundur: Karabatic eins og olíuprammi á fullri ferð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar
Guðmundur Guðmundsson.
Guðmundur Guðmundsson. Mynd/DIENER
Guðmundur Guðmundsson var skiljanlega heldur niðurlútur eftir tap Íslands fyrir Frakklandi í undanúrslitum Evrópumeistaramótsins í handbolta í dag.

Ísland tapaði leiknum, 36-28, eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik.

Guðmundur sagði fyrir leik að frumskilyrði fyrir því að vinna Frakka væri að spila vel.

„Þannig var það bara ekki í dag," sagði Guðmundur eftir leikinn. „Mér fannst til dæmis svolítið sorglegt að við vorum ekki með betri stöðu eftir fyrri hálfleikinn."

„Þá vorum við að afhenda þeim boltann 4-5 sinnum þegar við vorum að reyna línusendingar. Þess í stað fengu þeir boltann, komu í hraðaupphlaup og skoruðu mark."

„Þá gerðist það alla vega einu sinni að við fengum tvö mörk á okkur þegar við vorum einum fleiri. Við fengum líka ódýr mörk á okkur úr hornum - allavega þrjú eða fjögur."

„Þetta eru lykilatriðin gagnvart því að við vorum ekki yfir í fyrri hálfleik eða héldum alla vega jöfnu," sagði Guðmundur.

„Í sjálfu sér var ég mjög ánægður með sóknina í fyrri hálfleik og hún gekk í raun alveg eins og við ætluðum okkur."

En þá kom þessi slæma byrjun í síðari hálfleik og segir Guðmundur að hún hafi gert út um leikinn.

„Við byrjuðum mjög illa og fengum átta af fyrstu ellefu mörkunum á okkur. Þá sigldu þeir einfaldlega fram úr okkur. Við reyndum ýmislegt til að ná þeim aftur en það bara dugði ekki til."

„En það sem ég er svekktastur með að við vorum að afhenda þeim boltann allt of oft. Það bara má ekki gegn Frökkum."

Nikola Karabatic átti nánast fullkominn leik í kvöld. Guðmundur hristi hausinn þegar hann var spurður hvort íslensku varnarmennirnir hefðu átt að fara betur út í hann.

„Það var allt reynt í þessu. Við vorum búnir að fara yfir þetta 100 sinnum. Það er bara ekki hlaupið að því að stöðva hann. Það er bara svoleiðis. Hann er eins og olíuprammi sem kemur á fullri ferð á mann."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×