Lífið

Fjölskyldan styrkur minn og veikleiki

Angelina Jolie. MYND/Cover Media
Angelina Jolie. MYND/Cover Media

Fjölskylda leikkonunnar Angelinu Jolie, sem fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Salt sem verður frumsýnd hér á landi á morgun, er bæði styrkur hennar og veikleiki í lífinu.

Hollywoodstjarnan, sem er 35 ára gömul, elur upp sex börn ásamt unnusta sínum Brad Pitt samhliða farsælum leiklistarferli.

MYND/Cover Media

Angelina segir fjölskylduna vera í fyrsta sæti hjá henni og að hún tekur hana fram yfir allt annað í lífinu.

„Fjölskyldan mín er bæði styrkur minn og veikleiki. Ég elska hana innilega og ef eitthvað slæmt kæmi fyrir börnin okkar myndi það endanlega brjóta mig niður," sagði Angelina.

„Ég get átt slæma daga þar sem fólk talar niður til mín og segir hræðilega hluti um og við mig en þegar ég kem heim til mín er ég hamingjusamasta manneskja í heimi," sagði Angelina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×