Snorri Steinn: Þvílík liðsheild Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 28. janúar 2010 19:14 Mynd/DIENER
Snorri Steinn Guðjónsson sagði að á móti sem þessu þyrfti íslenska landsliðið á öllum sínum leikmönnum að halda. Ísland komst í dag í undanúrslit á EM í handbolta með sigri á Noregi, 35-34, í lokaumferð milliriðlakeppninnar. „Þvílík liðsheild sem við erum með,“ sagði hann eftir leikinn. „Það eru alltaf einhverjir nýir leikmenn að stíga upp og spila vel. Vignir var til að mynda frábær í vörninni í dag.“ „En þannig ná lið árangri. Landsliðið telur sextán leikmenn og þarf að nota þá alla í svona móti. Það er erfitt að eiga átta góða leiki í röð og það getur enginn spilað átta sinnum sextíu mínútur.“ Hann segir að ákveðnu markmiði hafi verið náð með sigrinum í dag. „Það fyrsta var að fara upp úr riðlinum með ákveðinn fjölda stiga. Svo var það líka hluti af langtímamarkmiðinu að komast í undanúrslitin.“ „En við höfum tekið eitt skref í einu hingað til og gerum það áfram. Við pössum okkur á því að fara ekki fram úr okkur.“ Hann sagði að það hefði verið auðvelt að halda einbeitingu út allan leikinn þrátt fyrir mikilvægi leiksins. „Það var fínt að fá fyrsta leik í dag. Hefðum við tapað þá hefði þetta í raun verið búið því það hefði ekki verið hægt að stóla á Króatana.“ „Það var frábært að við þurftum bara að stóla á okkur sjálfa og þannig viljum við hafa það. Það gerði okkur kleift að mæta gríðarlega einbeittir og vel undirbúnir til leiks.“ Í kvöld mætir Danmörku liði Króatíu í hreinum úrslitaleik um hvort liðið fylgi Íslandi í undanúrslit. Króatíu dugir jafnteflið. „Ég held að Danir vinni,“ sagði Snorri. „Ég held bara með þeim. Ég spilaði með mörgum þeirra og kann vel við þá. Króatar hafa ekki spilað vel í keppninni og við áttum að vinna þá.“
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira