Enski boltinn

Adebayor til í að yfirgefa Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Emmanuel Adebayor viðurkennir að hann myndi líklega yfirgefa herbúðir Man. City fengi hann tilboð frá félagi sem gæti lofað honum sæti í byrjunarliðinu.

Adebayor á ekki upp á pallborðið hjá Roberto Mancini, stjóra City, þessa dagana og hefur byrjað fyrstu leikina á bekknum.

"Þetta verður langt og erfitt tímabil fyrir mig. Ég er knattspyrnumaður og verð að halda áfram. Ég má ekki gefast upp og verð að berjast áfram," sagði Adebayor.

"Ef maður kemst ekki í lið og lið vill fá mig þá mun ég fara enda vil ég spila fyrir lið sem vill nota mig. Ef ég fæ ekki tækifæri hér þá mun ég fara annað þar sem ég fæ að spila."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×