Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu steinlá fyrir Svíum, 5-1, er liðin mættust á Algarve Cup í dag.
Íslenska liðið byrjaði leikinn vel, komst í 1-0 með marki Hólmfríðar Magnúsdóttur og þannig stóðu leikar í hálfleik.
Í síðari hálfleik virðist leikur íslenska liðsins hafa hrunið því liðið fékk á sig fimm mörk á aðeins 25 mínútum.
Ísland mætir Noregi í næsta leik um helgina.