Hjálmar Hjálmarsson: Gleðilegan Kópavog Hjálmar Hjálmarsson skrifar 25. maí 2010 14:01 Stjórnmál eru ekki íþróttir. Kosningar eru ekki kappleikur þar sem einn Flokkur sigrar hina Flokkana og fær völdin í verðlaun. Það eru engar medalíur eða bikarar í verðlaun fyrir stjórnmálamennina. Hvort þú styður HK eða Breiðablik hefur ekkert með stjórnmál að gera.- Stjórnmálaflokkur er ekki félag í Enska-boltanum. Þótt þú styðjir Manchester City til dauðadags þá hefurðu leyfi til að skipta um skoðun þegar kemur að stjórnmálum. Stjórnmál eru stjórnmál. Stjórnmál eru ekki trúarbrögð. Enginn leiðtogi stjórnmálaflokks mun fyrirgefa oss vorar skuldir og enn síður frelsa oss frá illu. Það hefur enginn verið krossfestur fyrir syndir Sjálfstæðisflokksins. Ekki enn. Samfylkingarmenn og konur munu ekki brenna í helvíti,- að minnsta kosti ekki fyrir það eitt að hafa stutt Samfylkinguna. Framsóknarmenn munu ekki gjalda þess í næsta lífi að hafa kosið Flokkinn. Þó svo þú Guð þinn herra og viljir halda fast í þína barnatrú þá þarftu ekki að óttast það að skipta um skoðun í kjörklefanum. Hann sér þig ekki þar. Nei, stjórnmál eru ekki trúarbrögð. Stjórnmál eru stjórnmál. Stjórnmál eru ekki viðskiptahugmynd. Þó snúast ekki um kaup og sölu á hugsjónum, kenningum og skoðunum. Stjórnmál snúast ekki um arðsemi,hagkvæmni eða gróða. Stjórnmálaflokkur sem viðskiptahugmynd er vond hugmynd. Ef stjórnmálamaður sem býður þér peninga eða djobb í skiptum fyrir atkvæði sitt veistu að þú mátt ekki kjósa hann. Stjórnmál eru ekki bissness. Stjórnmál eru stjórnmál. Stjórnmál snúast um samkomulag, réttlæti og sanngirni. Réttara sagt: Stjórnmál eiga að snúast um samkomulag, réttlæti og sanngirni. Hinsvegar hafa stjórnmálakonurnar og mennirnir fyrir löngu síðan misst sjónar á þessum grundvallaratriðum. Þeir hafa brotið af sér,tæklað aftan frá, togað í peysur, gefið olnbogaskot, hrint og sparkað í „andstæðinga" sína í þeim eina tilgangi að hengja á sig medalíur og lyfta gylltum bikurum. Þeir hafa tekið sér vald guða og boðað trúarkenningar um frelsi og markað og arðsemi og hagvöxt. Póltísku æðstuprestarnir hafa merkt okkur táknum sínum og talið okkur trú um að allt færi til helvítis ef við myndum ekki ganga til altaris gróðahyggju og sjálfsdýrkunar og meðtaka þeirra pólitísku blessun. Þeir hafa selt hugsjónir sínar og samvisku fyrir góðar stöður, fyrir góð djobb, ekki bara handa sjálfum sér heldur líka fyrir fjölskylduna, vinina, flokksfélagana. Það er hin raunverulega viðskiptahugmynd íslenskra stjórnmála. Að komast í gott djobb. - Verkefni okkar í kosningunum 29.maí er að breyta þessu. Látum þessar kosningar snúast um samkomulag, réttæti og sanngirni. Gefum ónýtu, spilltu og leiðinlegu flokkunum frí í 4 ár. Tökum af þeim völdin og færum þau aftur til fólksins. Næst Besti Flokkurinn býður annan kost í Kópavogi. Hann er opinn öllum án tillits til stjórnmálaskoðana, búsetu, hörundlitar, kyns, kynhneigðar, trúarskoðana eða með hvað liði í Enska-boltanum viðkomandi heldur. Næst Besti Flokkurinn heldur enga félagaskrá. Allir sem vilja vinna með flokknum eru í flokknum þegar þeir vilja og ekki í honum þegar þeir vilja það ekki. Á Íslandi er félagafrelsi og allir sem eru í Næst Besta Flokknum er velkomnir að vera í hvaða félagi sem er. Næst Besti Flokkurinn innheimtir engin félagsgjöld. Hann á enga peninga og skuldar enga peninga. Næst Besti Flokkurinn á engar eignir og hefur því engin fjárhagsleg hagsmunatengsl, hvorki við stofnanir Kópavogsbæjar né aðra. Næst Besti Flokkurinn þiggur enga peningastyrki. Hvorki frá einstaklingum,fyrirtækjum,stofnunum eða opinberum aðilum. Fyrir hönd Kópavogsbúa fer Næst Besti Flokkurinn fram á skilyrðislausa uppgjöf og valdaafsal ónýtu stjórnmálaflokkanna sem nú sitja í bæjarstjórn. Við krefjumst þess að skipað verði í nefndir, ráð, embætti og ábyrgðarstöður á vegum bæjarins á faglegan hátt en ekki með hagsmuni flokkanna að leiðarljósi eins og nú er gert. Við þurfum fólk sem hefur fyrst og fremst áhuga og ekki síður þekkingu til að sitja í ráðum og nefndum á vegum Kópavogsbæjar. Við verðum að koma á laggirnar Sparisjóði í eigu allra bæjarbúa. Bankakerfið er handónýtt og einhvernveginn tókst stjórnvöldum ásamt óhæfum bankamönnum að rústa sparisjóðakerfinu eins og það lagði sig. Það er sérstaklega erfitt í dag fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og einstaklinga sem vilja stofna ný fyrirtæki að fá lánsfé. Vextir eru alltof háir og fasteignir flestra veðsettar upp í topp og rúmlega það. Stóru bankarnir þrír í eigu ríkisins eru á fullu í samkeppnisrekstri og hafa engan áhuga á nýsköpun og frumkvæði einstaklinga sem oft eru með góðar hugmyndir. Við verðum því sjálf að taka í taumana og stofna SPARISJÓÐ með gamla laginu sem verður sameign Kópavogsbúa. Sparisjóður gæti lánað til uppbyggilegra verkefna, gætt frumkvöðlastarfsemi lífi og hleypt blóði í atvinnuskapandi verkefni. Það er mikið af hugmyndaríku og duglegui fólki í Kópavogi sem dreymir um að stofna fyrirtæki sem veitti þeim sjálfum og kannski nokkrum öðrum vinnu. En það sem þarf til eru peningar, lánsfé til að koma sér af stað. 1500 manneskjur eru atvinnulausar í Kópavogi og það eru alltof mikið. Til að leysa þessi mikilvægu mál duga engar stórar turnbyggingar, íþróttahallir eða patentlausnir. Frumkvöðlasetur í Kórnum leysir ekki atvinnuvandann. Hér þurfum við að hugsa smátt, því margt smátt gerir eitt stórt og sparisjóður með gamla laginu gæti verið verkfærið sem okkur vantar til þess að snúa við blaðinu. Mikilvægasta verkefni okkar sem tökum við stjórn bæjarins eftir kosningar verður að vinna saman að velferð íbúanna í Kópavogi með sanngirni og réttlæti að leiðarljósi. Saman getum við gert Kópavog að gleðilegum bæ,- en þá verðum líka við að losa okkur við gömlu ónýtu flokkana. Burt með rex og pex , setjum x við X. Ég hvet þig lesandi góður til þess að kynna þér hin fjölmörgu stefnumál okkar á veraldarvefnum www.næstbestiflokkurinn.is Við viljum gefa okkur í Kópavogi, sem getum ekki kosið Besta flokkinn, tækifæri til þess að kjósa þann Næst Besta. Lifið heil. Hjálmar Hjálmarsson, leiðsögumaður Næst Besta Flokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 02.05.2026 Halldór Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar