Arnór: Eigum hrós skilið fyrir síðustu mínúturnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 25. janúar 2010 18:45 Arnór á ferðinni í dag. Mynd/DIENER
Arnór Atlason sagði að þrátt fyrir allt hafi íslenska liðið sýnt mikinn styrk á lokamínútum leiksins gegn Króatíu á EM í handbolta í kvöld. „Við vorum að elta síðustu þrjár mínúturnar og náðum að skora þrjú jöfnunarmörk á þessum kafla. Og það úr sóknum sem við erum ekki endilega mikið að skora úr öllu jöfnu. Þetta var hrikalega mikilvægt stig og það er enn í okkar höndum að komast í undanúrslitin.“ Hann segir að það megi ekki gleyma því hversu sterkt lið Króatar eru með. „Þetta eru engir apakettir sem við erum að spila við. Þetta er silfurþjóðin á bæði HM og EM. Að fá eitt stig á móti þeim er ekki heimsendir.“ „Við vorum að spila þokkalega en það sem drap okkur voru allar tveggja mínútna brottvísanirnar sem við fengum í seinni hálfleik. Fram að því vorum við með leikinn í okkar höndum.“ „Það kostar hellingskraft að spila færri svo lengi gegn þessu sterka liði.“ Hann segir sóknarleik íslenska liðsins hafa gengið vel, sérstaklega miðað við hvað Króatar spila öflugan varnarleik. „Það er mjög erfitt að spila á móti svona vörn. Maður verður að hugsa mjög mikið. Þeir reyna ítrekað að plata mann í sendingar hingað og þangað sem þeir svo éta. Mér fannst við því leysa þetta mjög vel.“
Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Milner aftur til Liverpool Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira