80% af áætluðum niðurskurði bitnar á börnum og unglingum Kristín Fjóla Bergþórsdóttir skrifar 1. mars 2010 16:06 Á Álftanesi búa um 2.500 íbúar. 33% þeirra -eða um 830 eru börn og unglingar. Frá því efnahagshrunið skall yfir íslendinga síðari hluta árs 2008 hafa ráðamenn ríkis og sveitarfélaga allir talað sem einn um mikilvægi velferðar barna og unglinga og haldið því á lofti að gæta beri þess að afleiðingar hrunsins bitni ekki á þeim. Þann 12. janúar sl. barst stjórnsýslu Álftaness tölvubréf frá umboðsmanni barna, Margréti Maríu Sigurðardóttur, þar sem hún minnir á 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en sú grein felur í sér; að það sem barni sé fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir sem þau varða. Segir umboðsmaður barna í bréfi sínu, að af ákvæðinu leiði m.a. það, að skylt sé að leita annarra leiða við niðurskurð, áður en þjónusta við börn sé skert með einum eða öðrum hætti. Á Álftanesi búa börn og unglingar við annan veruleika. Þann 27. janúar sl. kynnti meirihluti bæjarstjórnar Álftaness tillögur sínar að niðurskurði vegna fjárhagsvanda sveitarfélagsins upp á um 180 milljónir, -þar af snúa um 140 milljónir með einhverjum hætti að starfi með, -og fyrir, börn og unglinga. Þessar tillögur hafa nú verið samþykktar af meirihluta bæjarstjórnar. Í beinu framhaldi af þeim forsendubresti sem varð við efnahagshrunið á Íslandi haustið 2008 stendur Sveitarfélagið Álftanes nú frammi fyrir fjárhagsvanda sem finna þarf lausn á. Vissulega er, við þær aðstæður, eðlilegt að hagræða í rekstri og þrengja að, þar sem hægt er. Það þarf sjálfsagt hvert heimili í landinu að gera um þessar mundir, -en allt hefur sín takmörk. Þær tillögur sem nú hafa verið samþykktar af meirihluta bæjarstjórnar eru óásættanlegar fyrir íbúa sveitarfélagsins og það sem alvarlegast er við þær, er sú staðreynd að 80% af niðurskurðinum bitnar á barna- og unglingastarfi. Ég óttast að þessi stórfelldi niðurskurður muni stórskaða samfélag á Álftanesi með ófyrirséðum afleiðingum. Með tillögum sínum hefur meirihluti bæjarstjórnar samþykkt: að leggja niður vinnuskóla unglinga í sumar að skerða fjárframlög til tónlistarkennslu um 55% og setja framkvæmd hennar í hættu að leggja niður stöðu íþrótta- og tómstundafulltrúa að leggja niður stöðu leikskólafulltrúa að leggja niður stöðu félagsmálastjórna að leggja niður stöðu fræðslustjóra að leggja niður stöðu forstöðumanns íþrótta- og sundmiðstöðvar að fella niður íþrótta- og tómstundastyrki til barna og unglinga að skerða mjög styrki til félaga eins og UMFÁ og skátafélgsins Svana, sem halda uppi starfi fyrir börn og unglinga að hætta niðurgreiðslu hádegismáltíða fyrir grunnskólabörn að hætta heimgreiðslum til foreldra ungra barna að loknu fæðingarorlofi að fækka starfsmönnum Frístundar, -sem er vistun grunnskólabarna eftir að skóladegi lýkur að fjölga börnum á leikskóladeildum að draga úr aðkeyptri þjónustu sérfræðinga í leik- og grunnskóla að skerða fjárframlög til grunnskólans um tugi milljóna að lækka styrki til allra almennra félagasamtaka íbúanna að hækka öll þjónustugjöld að hækka fasteignaskatta og útsvar að leggja niður stöðu skipulags- og byggingarfulltrúa Að lokum hefur verið samþykkt að stytta opnunartíma sundlaugar! Sundlaugarinnar sem kostaði svo mikið að hún er af sumum sögð hafa, -ein og sér, sett sveitarfélagið á hausinn. Til viðbótar ákvörðunar um styttri opnunartíma bættist svo við, -á fundi bæjarstjórnar þann 25. febrúar sl., að segja upp forstöðumanni sundlaugarinnar og sameina starf hans starfi íþrótta- og tómstundafulltrúa, -sem áður átti að leggja niður! Áætlað er að þessi breyting taki gildi á miðju sumri, þ.e. á háannatíma sundlaugarinnar, en til glöggvunar um umfang hennar, þá hafa rúmlega 84.000 gestir borgað sig ofan í laugina frá opnun hennar fyrir 9 mánuðum, 12.600 komur eru í Nautilus og um 9.000 komur í skólasund. -Það er skrýtið að eiga mjólkurkýr, borga ofan í hana fóðrið, en hella svo niður mjólkinni!Allt að 84% skatttekna sveitarfélagsins fara til uppeldis- og fræðslumála Álftanes er á ýmsan hátt frábrugðið öðrum sveitarfélögum. Eitt af því sem er óvenjulegt, -og um leið óheppilegt við Álftanes, er það að hér er ekkert atvinnulíf, -vegna þess að hér hefur aldrei verið hugsað fyrir því að koma því upp. Þótti ekki taka því, -það væri svo litlar tekjur af því að hafa! Bygging þessarar eftirsóttu sundlaugar var m.a. einn hlekkur í þeirri keðju að byggja hér upp atvinnulíf með áherslu á menningartengda ferðaþjónustu. Aðsóknartölur sundlaugarinnar sýna að sá hlekkur var sterkur. Á sama tíma og meirihluti bæjarstjórnar Álftaness samþykkir samning við Eftirlitsnefnd sveitarfélaga um að leggja hér á aukna skatta og óbærilegan niðurskurð hefur hann ekki krafist, -og þá meina ég krafist, svara frá ríkinu, sem ber ábyrgð á starfsemi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, um það hvort leiðrétta eigi greiðslur til sveitarfélagsins Álftaness, en sýnt hefur verið fram á að þær séu of lágar. Það er óumdeilt hlutverk sjóðsins að honum beri að jafna aðstöðumun sveitarfélaga, og sá aðstöðumunur getur verið af ýmsum toga. Á Álftanesi stafar hann fyrst og fremst af þeim óvenjulegu forsendum að hér er fjöldi barna um 40% meiri en að meðaltali í flestum öðrum sveitarfélögum og að sveitarfélagið hefur engar tekjur af atvinnulífi. Úthlutunarreglur sjóðsins virðast ekki ná að dekka þessar tvær breytur nægilega vel, -en eins og áður sagði, eru þær báðar óvenjulegar. Ef það reynist rétt að þær reglur sem sjóðurinn úthlutar eftir í dag ná ekki að jafna þann aðstöðumun sem Álftanes býr við þarf að breyta þeim reglum, -til að rétt sé gefið. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa ályktað um þetta efni til stuðnings Álftanesi, en ráðherra sveitarstjórnarmála og forysta sveitarfélaganna á landsvísu forðast efnislega umfjöllun um málið, -væntanlega af ótta við það að komi í ljós að kröfur Álftaness séu réttar, muni það skerða greiðslur til dreifbýlissveitarfélaga, þar sem sjóðurinn hefur einungis ákveðna upphæð til umráða. Ekki á ég þá ósk að við leiðréttingu okkar mála þurfi önnur sveitarfélög að taka á sig óréttmæta skerðingu, heldur krefst ég þess að rétt sé gefið. Það sem til þarf að koma, samhliða breyttum reglum, er aukið fé til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga svo hann geti, eins og honum ber skylda til, jafnað aðstöðumun ALLRA sveitarfélaga í landinu á sanngjarnan hátt. Bæjarfulltrúar Á-lista hafa, allt frá árinu 2007, barist fyrir þessari leiðréttingu og fylgt málinu eftir af bestu getu og er farið að lengja eftir niðurstöðu. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hefur núverandi meirihluti bæjarstjórnar hinsvegar ekki viljað leggja þann kraft sem til þarf í að fylgja kröfunni eftir. Það er ótrúlegt að við, fulltrúar minnihluta í bæjarstjórn, skulum vera í því hlutverki að herja á ríkið um þessa leiðréttingu á meðan fulltrúar meirihlutans sitja hljóð hjá, bíða þess sem verða vill og ganga til samninga við Eftirlitsnefnd sveitarfélaga um að leggja aukna skatta og óbærilegan niðurskurð á íbúana án þess að krefja ríkið svara við þessari sanngjörnu og rökstuddu kröfu Álftaness. Hvað er það sem þau óttast? Ég skora á nýstofnuð Hagsmunasamtök íbúa á Álftanesi að gera það að forgangskröfu sinni að fá þessar greiðslur leiðréttar. Það er krafan sem skiptir mestu máli fyrir fjárhag sveitarfélagsins, -þó að fleira þurfi að koma til. Það er von mín, að sú Fjárhaldsstjórn sem nú hefur verið skipuð sveitarfélaginu sjái að ekki er hægt að ganga svo nærri samfélagi á Álftanesi sem meirihluti bæjarstjórnar hefur lagt til og samþykkt, og aðstoði okkur við að finna aðrar og ásættanlegri leiðir. Umfjöllun um málefni Álftaness má sjá á: http://www.alftaneshreyfingin.blog.isKristín Fjóla Bergþórsdóttir, bæjarfulltrúi Á-lista Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Heiða Ingimarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar