Vogunarsjóður tapar 900 milljóna kröfu á hendur Glitni 12. október 2010 12:48
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að hafna beri að taka kröfu vogunarsjóðsins Venor Capital Master Fund á hendur Glitni inn á kröfuskrá þar sem krafan barst of seint. Um er að ræða kröfu upp á 5 milljónir punda eða tæplega 900 milljónir kr. Þá var sjóðnum gert að greiða Glitni 300 þúsund kr. í málskostnað. Fram kemur í dóminum að kröfulýsingarfrestur í þrotabú Glitnis rann út þann 26. nóvember 2009. Fyrrgreind krafa vogunarsjóðsins var póstlögð með aðstoð hraðflutningafyrirtækisins FedEx hinn 23. nóvember 2009 og kemur fram hjá vogunarsjóðnum að hann hafi gengið út frá því að póstendingin bærist viðtakanda í síðasta lagi 26. nóvember 2009. Vegna mistaka var póstsendingin send til Írlands og barst ekki í hendur varnaraðila fyrr en 30. nóvember 2009. Hinn 14. desember 2009 tilkynnti slitastjórn Glitnis sóknaraðila að ekki yrði tekin afstaða til kröfu hans þar sem henni hefði ekki verið lýst innan kröfulýsingarfrests. Mótmælti vogunarsjóðurinn þessari afstöðu með bréfi til slitastjórnar Glitnis 15. desember 2009. Á kröfuhafafundi slitastjórnar Glitnis 17. desember 2009 var fjallað um þann ágreining sem uppi var um kröfu sjóðsins og tókst hvorki að jafna ágreininginn á þeim fundi né á kröfuhafafundi 25. janúar 2010. Með bréfi 1. febrúar 2010 vísaði slitastjórn Glitnis ágreiningnum til Héraðsdóms Reykjavíkur og var bréfið móttekið 2. febrúar 2010 Fram kemur í dóminum að vogunarsjóðurinn telur að þar sem kröfulýsing hans sé ákvöð í skilningi íslensks samningaréttar hafi hún öðlast réttaráhrif, þ.e. orðið bindandi fyrir slitastjórn Glitnis, þegar hún var send af stað með tryggum hætti. Í dóminum segir að í máli þessu liggur fyrir að slitastjórn Glitnis birti auglýsingar um gjaldþrotaskiptin í samræmi við ákvæði laga í 46 löndum. Þá voru upplýsingar á heimasíðu Glitnis um, hvernig lýsa bæri kröfum, kröfulýsingarfrest og áhrif vanlýsingar. Að þessu virtu þykir ljóst að slitastjórn Glitnis stóð réttilega að innköllun og auglýsingum samkvæmt ákvæðum gjaldþrotalaga og í síðasta lagi hinn 6. nóvember 2009 mátti vogunarsjóðinum vera ljósar afleiðingar þess að kröfu væri lýst of seint. Þrátt fyrir það hófst hann ekki handa við að senda kröfulýsingu af stað fyrr en 23. nóvember 2009, aðeins þremur dögum áður en fresturinn rann út. „Þá var enn áréttað í tölvupósti starfsmanns varnaraðila 23. nóvember 2009 mikilvægi þess að krafan bærist slitastjórn í síðasta lagi 26. nóvember 2009. Verður sóknaraðili að bera allan halla af því að hafa ekki sent kröfulýsingu sína fyrr af stað en raun ber vitni," segir í dóminum.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira