Óvirkur guðleysingi fellur Karl Ægir Karlsson skrifar 28. október 2010 11:43 Ég hef aldrei trúað á neinn þeirra þúsunda guða sem menn hafa tilbeðið, lifað og dáið fyrir. Fyrst fann ég fyrir eigin trúleysi í fermingarfræðslu. Presturinn talaði um upprisuna; hann var afgerandi vandaður maður og vænn. Ég hugsaði með mér að það gæti ekki staðist að hann, né nokkur annar maður, tryði þessu. Ég hef samt aldrei fyrr en nú fundið hjá mér þörf til þess að kvarta undan ríkiskirkjunni Íslensku. Utan nokkrar snerrur við (yfirleitt áhugalausa) kunningja. Þessar snerrur urðu þó til þess að ég þumbaðist í gegnum bíblíuna (það tók lungað af frítímanum á lélegri netavertíð). Það var samhengislaus lesning og furðuleg. Við nám í bandaríkjum man ég fyrst eftir að hafa, annars vegar, hitt manneskjur sem ég trúði að trúðu, og, hins vegar, kynnst kirkjum sem voru beinlínis skaðlegar. Þetta helst í hendur. Dæmi um kenningar sem boðaðar eru í skaðlegum kirkjum eru: kvenhatur, hommahatur og kynþáttahyggja. Hófasamari kirkjur boða líka margar sköpunarkenningu og hafna þróunarkenningu og kenningu um miklahvell. Og nánast allar fylkja sér gegn fóstureyðingum, hjónaböndum samkynhneigðra og stofnfrumurannsóknum. Vatíkanið er einnig ekki saklaust heldur; þar á bæ hafa menn haldið hlífiskyldi yfir barnaníðingum og barist gegn notkun smokka í afríku og með því aukið við eyðnipláguna. Stuðningur bandaríkjamanna við seinasta stríð sem þeir lögðu í var einnig alger í þeim kreðsum sem hvað ákafast sækir kirkjur en hverfandi hjá þeim sem gera það ekki. Allir söfnuðir hafa líka þróað með sér algert ónæmi fyrir vísindalegum staðreyndum - sem eitt og sér er skaðlegt. Þjóðkirkjan okkar er þó augljóslega margfalt betri en þetta. Í Bandaríkjunum stóð ég mig jafnvel við að ljúga uppá mig trú. Þar var stundum hreinlega ekki í leggjandi að segja sannleikann. Ég hef sem sagt verið óvirkur guðleysingi. Fyrir skemmstu kynnti mannréttindaráð Reykjavíkur sanngjarnar tillögur sem var ætlað að greina á milli trúboðs og trúarbragðafræðslu í grunnskólum og leikskólum. Tillögurnar eru varla annað en sjálfsagðir mannasiðir, þó líklegast megi fínpússa orðalagið. Og af þremur ástæðum hefði ég haldið að þessar tillögur fengju litla athygli. Í fyrsta lagi, vegna almennrar samstöðu um að standa þurfi vörð um trúarbragðafræðslu því slæleg kennsla í trúarbrögðum felur í sér alvarlegan menntunarskort. Í öðru lagi, vegna þess að almennilegt grenjandi trúboð er afar fátítt í skólum landsins því hefðu reglubreytingar lítil áhrif á þjóðkirkjuna. Og í þriðja lagi, hafi eitthver núningur orðið mun hann aukast mjög á næstu árum því eru skýrar reglur nauðsynlegar. En viðbrögðin voru mögnuð. Helgislepjan rann hratt af prestunum okkar. Menn sem þurfa áratugi til þess að taka á kynferðisbrotum eða að móta afstöðu til mannréttinda samkynhneigðra, svöruðu strax. Það má víða í fjölmiðlum finna máttlaus mótrökin í löngu, tyrfnu, máli. Ofstæki trúleysingjanna og meint andúð á kirkjunni ber þar víða að góma. Öðru hverju minntu þeir mig á kollega sína í bandaríkjunum. Hér vil ég, af hógværð, bera til baka ofstækið og andúðina sem borin er á okkur trúleysingjanna. Í fyrsta lagi þá efast ég um að það sé gagnlegt (eða yfirleitt rökrétt) að flokka menn eftir því sem þeir trúa ekki. Við nafni minn Sigurbjörnsson erum báðir guðleysingjar, ef horft er til guðanna Ra eða Seifs og trúleysingjar ef horft er til jarðmiðjukenningarinnar. Eða það hlýtur vera. Þessar staðreyndir segja hinsvegar ekki neitt um okkur. Í öðru lagi þá er það ekki ofstæki að leggja ekki trúnað við furðulegar frásagnir. Það er ekki ofstæki að hafna að jörðin hafi verið sköpuð fyrir innan við 10 þúsund árum, við vitum betur; Adam og Eva voru ekki til, við vitum betur; heilagir andar geta ekki börn, við vitum betur. Eða hvað þá: að Jesú hafi látið sig fæðast (ekki gleyma hann er líka Guð og heilagur andi), látið sjálfan sig verða fyrir pyntingum (til þess að ná eyrum sjálfs síns), látið svo drepa sig (fyrir mig meðal annars!), gengið svo aftur og loks stigið til himna. Við vitum betur. Trúboð felst meðal annars í að normalisera svona steypu fyrir manneskjum meðan enn eru ungar. Það er ekki ofstæki að æskja þess boðun þessara kenninga fari fram utan skólatíma. Ég velti því reyndar fyrir mér hvort að allir þjóðkirkjumenn, þó sannkristnir séu, vilji fórna óðum fækkandi kennslustundum fyrir trúboð eða bænaskak. Ekki nóg með að, rökrétt, höfnun fáranlegra sagna bíblíunnar (eða annarra helgra rita) sé flokkað sem ofstæki, heldur er líka ólöglegt að færa höfnunina í letur. Guðlast er glæpur samkvæmt íslenskum lögum. Glæpur án fórnarlambs en glæpur engu að síður. Ef með þyrfti, myndi ég engu að síður berjast fyrir því að trúmenn geti stundað trú sína. Bara í sínum tíma (og á eigin reikning). Því, eins og títt er um trúleysingjanna, beinist andúðin að skoðanakúgun og hverslags hindrunum á frjálsri hugsun, frálsri tjáningu og frjálsri þekkingarleit. Við guðleysingjar erum eins og þið öll hin - nema að við göngum bara einum guði lengra. Í því felst ekki ofstæki gegn guðum. Og í því felst ekki andúð á kirkjum. Að hafna trúboði í grunnskólum og leikskólum er rökrétt, fordómalaus og hófstillt skoðun. Höfundur er vísindamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Skoðun Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar