Formaður löggiltra endurskoðenda stjórnarmaður PwC Valur Grettisson skrifar 9. desember 2010 14:04 PricewaterhouseCoopers. „
Ég á erfitt með að tjá mig um málið," segir Þórir H. Ólafsson, formaður Félags löggiltra endurskoðenda, en það vill svo til að hann er einnig stjórnarmaður í PricewaterhouseCoopers (PwC), sem hefur legið undir harðri gagnrýni í tveimur erlendum skýrslum sem voru unnar fyrir embætti sérstaks saksóknara. Skýrslurnar sem um ræðir taka fyrir Landsbankann annarsvegar og svo Glitni. PwC var endurskoðandi beggja bankanna. Fyrirtækið sætir harðri gagnrýni, meðal annars í ljósi þess að í skýrslunni sem tekur fyrir Landsbankann, kemur fram að bankinn var tæknilega gjaldþrota árið 2007. Þrátt fyrir það kvittuðu endurskoðendur PwC undir ársreikninginn. Þá er það fullyrt í skýrslunum að PwC hafi ekki tengt saman aðila sem voru augljóslega tengdir og fengu tugi milljarða lánaða út úr bönkunum. Svo virðist sem endurskoðendafyrirtækið hafi til dæmis ekki séð hagsmunatengslin á milli félaga tengdum Jóni Ásgeiri og Glitnis þegar þau fengu milljarða að láni. Þegar Vísir hafði samband við formann Félags löggiltra endurskoðenda til þess að kanna viðbrögð félagsins vegna málsins kom í ljós, eins og fyrr greinir frá, að formaður félagsins er jafnframt stjórnarmaður hjá PwC. Þórir baðst því undan að tjá sig um málið vegna augljósra hagsmunatengsla. PricewaterhouseCoopers sendu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem þeir sögðust ekki geta varið hendur sínar þar sem þeir hefðu ekki skýrslurnar undir höndum. Þá gagnrýndu þeir leka skýrslnanna til fjölmiðla harðlega.
Tengdar fréttir PricewaterhouseCoopers brást samkvæmt franskri skýrslu Ein af niðurstöðum skýrsluhöfunda frönsku skýrslunnar, sem unnin var fyrir embætti sérstaks saksóknara, er sú að endurskoðendafélagið PricewaterhouseCoopers (PwC) hafi brugðist. 9. desember 2010 11:01 Landsbankinn var tæknilega fallinn 2007 - aftur brást PwC Ef ársreikningur Landsbankans hefði verið réttur árið 2007 þá hefði komið í ljós að eigið fé bankans var undir leyfilegu lágmarki og var því tæknilega fallinn ári áður en hann fór í þrot. Þetta kemur meðal annars fram í norskri skýrslu sem var unnin fyrir embætti sérstaks saksóknara og Viðskiptablaðið greinir frá í dag. 9. desember 2010 11:59 PwC segja endurskoðunarvinnu í samræmi við starfsskyldur „PricewaterhouseCoopers (PwC) gerir alvarlega athugasemd við þau vinnubrögð að rannsóknarskýrslum opinbers aðila um Glitni banka og Landsbankann, er m.a. varða starfsheiður PwC, sé komið í hendur fjölmiðla til umfjöllunar án þess að PwC hafi verið kynnt efni skýrslnanna.“ 9. desember 2010 11:42 Lánuðu tengdum aðilum 85 milljarða mánuði fyrir hrun Glitnir lánaði 85 milljarða króna til aðila sem tengdum bankanum mánuði fyrir hrun samkvæmt franskri skýrslu sem embætti sérstaks saksóknara lét gera fyrir sig. Kastljós og DV hafa greint frá innihaldi skýrslunnar. Þá er fjallað ítarlega um málið í Viðskiptablaðinu í dag. 9. desember 2010 10:42 Kolsvartar skýrslur um starfsemi bankanna Landsbankinn stóð mun verr en ársreikningur bankans gaf til kynna í lok árs 2007, að mati norsku sérfræðinganna Helge skogseth Berg og Jørgen Rønningen. 8. desember 2010 21:28 Ársreikningar Glitnis gáfu kolranga mynd af raunverulegri stöðu Bókhald Glitnis var í molum fyrir hrun og gaf falska mynd af stöðu bankans, samkvæmt franskri rannsókn sem unnin var fyrir Sérstakan saksóknara. 8. desember 2010 20:03 Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Sjá meira
PricewaterhouseCoopers brást samkvæmt franskri skýrslu Ein af niðurstöðum skýrsluhöfunda frönsku skýrslunnar, sem unnin var fyrir embætti sérstaks saksóknara, er sú að endurskoðendafélagið PricewaterhouseCoopers (PwC) hafi brugðist. 9. desember 2010 11:01
Landsbankinn var tæknilega fallinn 2007 - aftur brást PwC Ef ársreikningur Landsbankans hefði verið réttur árið 2007 þá hefði komið í ljós að eigið fé bankans var undir leyfilegu lágmarki og var því tæknilega fallinn ári áður en hann fór í þrot. Þetta kemur meðal annars fram í norskri skýrslu sem var unnin fyrir embætti sérstaks saksóknara og Viðskiptablaðið greinir frá í dag. 9. desember 2010 11:59
PwC segja endurskoðunarvinnu í samræmi við starfsskyldur „PricewaterhouseCoopers (PwC) gerir alvarlega athugasemd við þau vinnubrögð að rannsóknarskýrslum opinbers aðila um Glitni banka og Landsbankann, er m.a. varða starfsheiður PwC, sé komið í hendur fjölmiðla til umfjöllunar án þess að PwC hafi verið kynnt efni skýrslnanna.“ 9. desember 2010 11:42
Lánuðu tengdum aðilum 85 milljarða mánuði fyrir hrun Glitnir lánaði 85 milljarða króna til aðila sem tengdum bankanum mánuði fyrir hrun samkvæmt franskri skýrslu sem embætti sérstaks saksóknara lét gera fyrir sig. Kastljós og DV hafa greint frá innihaldi skýrslunnar. Þá er fjallað ítarlega um málið í Viðskiptablaðinu í dag. 9. desember 2010 10:42
Kolsvartar skýrslur um starfsemi bankanna Landsbankinn stóð mun verr en ársreikningur bankans gaf til kynna í lok árs 2007, að mati norsku sérfræðinganna Helge skogseth Berg og Jørgen Rønningen. 8. desember 2010 21:28
Ársreikningar Glitnis gáfu kolranga mynd af raunverulegri stöðu Bókhald Glitnis var í molum fyrir hrun og gaf falska mynd af stöðu bankans, samkvæmt franskri rannsókn sem unnin var fyrir Sérstakan saksóknara. 8. desember 2010 20:03