Lífið

Shiloh ákveðin

Leikkonan Angelina Jolie segir börn sín vera mjög ákveðin.
nordicphotos/getty
Leikkonan Angelina Jolie segir börn sín vera mjög ákveðin. nordicphotos/getty
Leikkonan Angelina Jolie hefur verið dugleg að kynna nýjustu kvikmynd sína, hasarmyndina Salt, víða um heim. Hún hefur veitt mörg viðtöl í því skyni og fjalla flest þeirra um fjölskyldulíf hennar og Brads Pitt.

Í einu slíku viðtali segist leikkonan ekki geta stjórnað því sem dóttir hennar, Shiloh, klæðist því stúlkan sé afskaplega ákveðinn lítill einstaklingur. „Valið er ekki mitt. Ég á mjög ákveðna fjögurra ára stúlku sem segir mér í hverju hún vill vera og ég leyfi henni að ráða því. Mér finnst að börn eigi að fá frelsi til að tjá sig á þann hátt sem þau kjósa,“ sagði Jolie, en hún hefur verið gagnrýnd fyrir að leyfa dóttur sinni að klæða sig eins og strákur.

„Önnur dóttir mín, Zahara, klæðir sig aftur á móti mjög stelpulega og vill helst bleik föt, pífur og blóm.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×