Nú þurfum við á þér að halda Íris Lind Sæmundsdóttir skrifar 4. nóvember 2010 06:00 Björgunarsveitir á Íslandi, sem allar starfa innan vébanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar, eru mannaðar sjálfboðaliðum sem standa vaktina allan sólarhringinn árið um kring. Eitt helsta hlutverk sveitanna er vera til staðar fyrir almenning þegar þörf er á. Þannig starfa þær í þágu almannaheilla og taka þátt í björgun, leit og gæslu. Mikilvægi þeirra í íslensku samfélagi verður vart dregið í efa en það hefur sýnt sig í gegnum árin að þær eru nauðsynlegur hlekkur í almannavarnakerfi landsins. Það sást til dæmis glöggt við björgunar- og hreinsunarstörf í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli þegar björgunarsveitarfólk hvaðanæva að af landinu lagði sitt af mörkum vegna ýmissa verkefna sem þá féllu til. Sveitirnar hafa einnig sannað sig á erlendum vettvangi, eins og þegar rústabjörgunarsveitin sem hefur hlotið sérstaka vottun Sameinuðu þjóðanna hélt utan til að sinna björgunarstörfum á Haítí fyrr á þessu ári. Mikilvægt er að hafa í huga að rekstur björgunarsveitanna er afar kostnaðarsamur en starfi þeirra verður ekki sinnt án vel þjálfaðs mannafla og góðs tækjabúnaðar. Björgunarsveitarfólk gengst undir mikla og stranga grunnþjálfun, auk þess sem gerð er krafa um símenntun og sérfræðimenntun á ýmsum sértækum björgunarsviðum eftir að grunnþjálfun er lokið. Einnig eru ákveðnar kröfur gerðar til þess um andlegan styrk, líkamlegt atgervi og tímafórn vegna þjálfunar og æfinga á vegum sveitanna. Sveitirnar þurfa einnig að vera búnar sérstökum tækjakosti sem hentar í hvers kyns björgunarstörf. Búnaðurinn þarf alltaf að vera tiltækur, yfirfarinn og í góðu lagi. Til að standa straum af rekstri björgunarsveitanna standa þær fyrir ýmiss konar fjáröflunarstarfi. Dagana 4.-7. nóvember munu þær standa fyrir árlegri sölu á Neyðarkallinum. Í ár er hann í líki rústabjörgunarmanns til heiðurs þeim sem stóðu vaktina vegna verkefnisins á Haítí. Rústabjörgunarsveitin skildi eftir mikið af búnaði sínum ytra svo hægt væri að nota hann í áframhaldandi hjálparstarfi. Ágóði af sölu Neyðarkallsins í ár mun meðal annars ganga upp í kaup á nýjum búnaði fyrir sveitina. Við björgunarfólk munum bjóða Neyðarkallinn til sölu á vinnustöðum og við verslanir um land allt næstu daga og vonum að þú takir vel á móti okkur. Við stöndum vaktina árið um kring fyrir þig og þína en þurfum núna á stuðningi þínum að halda. Því hvet ég þig til að kaupa Neyðarkallinn í ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar