Skoðun

Landnám ESB?

Baldur Þórhallsson skrifar

Evrópuandstæðingar láta að því liggja að ESB framfylgi útþenslustefnu. Þetta er ekki einungis alrangt heldur byggir á grundvallarmisskilningi á eðli og tilgangi Evrópusamvinnunnar. Fernt skiptir hér mestu.

Í fyrsta lagi þá hefur í samvinnu þjóðríkjanna innan ESB frá upphafi frekar verið horft innávið en útávið enda til sambandsins stofnað til að stuðla að betri kjörum og velferð íbúa aðildarríkjanna. Uppbygging hins sameiginlega innri markaðar hefur haft forgang. Ríkin hafa einnig brugðist við nýjum straumum og stefnum í Evrópu til dæmis með því að vinna sameiginlega að umhverfis- og náttúruvernd, bæta stöðu launafólks á sameiginlegum vinnumarkaði og styrkja menningu og menntun.

Í öðru lagi hafa flest aðildarríki sambandsins og þar af leiðandi sambandið sjálft verið frekar treg til að veita nýjum ríkjum inngöngu. Það tók Bretland, Danmörku og Írland tólf ár að fá aðild að sambandinu. Ríki ESB tóku Grikki, Spánverja og Portúgala upp á arma sína, frekar nauðug en viljug, eftir að einræðisstjórnir innan þessara ríkja hrökkluðust frá völdum. Nýfrjáls ríki Mið- og Austur-Evrópu knúðu strax dyra og ríki ESB sáu sér ekki annað fært en að veita þeim inngöngu, 15 árum eftir fall múrsins, í nafni lýðræðis og bættra kjara þessa nánu nágranna.

Í þriðja lagi byggir hugmyndin að Evrópusamvinnunni á vilja ríkjanna sjálfra til að vinna saman. Það er hverri þjóð í sjálfsvald sett hvort hún tekur þátt eða ekki. Til að fá inngöngu þurfa ríki að byggja á grunngildum Evrópuhugsjónarinnar, þ.e. friðsamlegum samskiptum, lýðræði, mannréttindum, frjálsu markaðshagkerfi og skilvirkri og gegnsærri stjórnsýslu. Það er ekki sjálfgefið að fá inngöngu.

Í fjórða lagi, þegar ríki gengur í sambandið heldur það að sjálfsögðu áfram, rétt eins og áður, að vinna að hagsmunum sínum. Aðildarríki ESB ráða för. Þau taka sameiginlega ákvarðanir sem síðan er framfylgt af sambandinu. Í þessu samhengi má benda á þá mikilvægu staðreynd að Ísland á í aðildarviðræðum við tuttugu og sjö ríki sambandsins. Hvert og eitt þeirra hefur neitunarvald í viðræðunum. Þetta sýnir styrk þjóðríkjanna. Þau hafa flest hver takmarkaðan áhuga á inngöngu nýrra ríkja þar sem þau horfa fyrst og fremst á eigin hagmuni innan sambandsins. Svo mun einnig verða um Ísland fái það inngöngu.






Skoðun

Sjá meira


×