Onesta: Einn okkar besti leikur í keppninni Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 30. janúar 2010 16:00 Frakkarnir fagna hér sigri á Íslendingum. Mynd/DIENER
Claude Onesta, landsliðsþjálfari Frakka, sagði að það hefði verið mjög erfitt að vinna lið Íslands í dag.Liðin mættust í undanúrslitum EM í handbolta, 36-28, í Vínarborg í dag. Frakkar mæta annað hvort Króötum eða Pólverjum í úrslitum.„Þetta var mjög góður leikur hjá okkur og einn sá besti í keppninni til þessa. Við stóðum okkur mun betur í kvöld en í fyrsta leik mótsins," sagði Onesta á blaðamannafundi eftir leik.„En það var mjög erfitt að vinna Ísland og við vissum að við myndum þurfa að spila mjög góða vörn til að vinna þá."„Okkur tókst að gera þeim erfitt fyrir í sóknarleiknum og fengum upp úr því hraðaupphlaup og mörk."Hann sagðist ekki eiga sér óskamótherja í úrslitaleiknum. „Alls ekki. Það skiptir ekki máli enda eru bæði liðin mjög sterk."Guillaume Junillon sagði að góður varnarleikur hafi verið lykillinn að sigri Frakka í kvöld. Hann skoraði sex mörk í leiknum, öll úr víti.„Það var vörnin sem skipti öllu máli hér í þessum leik. Hún gekk ekki nógu vel í fyrri hálfleik en var mun betri í þeim síðari," sagði hann.Franck Junillon skoraði tvö mörk í kvöld og hann sagði að frönsku leikmennirnir væru mjög ánægðir með sigurinn á Íslandi.„Við vissum að þetta yrði mjög erfiður leikur og mér fannst Ísland spila mjög vel í fyrri hálfleik."„En vörnin gekk vel og þá fengum við mörg mörk úr hraðaupphlaupum. Það hefur verið mjög erfitt að komast í úrslit á þessu móti en það tókst."
Mest lesið „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Körfubolti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Enski boltinn Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Fótbolti ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Íslenski boltinn „Sem betur fer slapp þetta“ Fótbolti Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Íslenski boltinn Sinner tók fram úr goðsögnum með glæstum sigri Sport Antonelli hélt uppteknum hætti Formúla 1 Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Fótbolti Fleiri fréttir Íslendingaliðið á leið í oddaleik eftir naumt tap Orri Freyr portúgalskur meistari þriðja árið í röð Óðinn með ellefu mörk á leið í úrslit „Ég þarf meira frá mínum reynslumestu mönnum en þetta“ Valur - ÍBV 39-33 | Fyrsta högg Valskvenna í markaleik „Hefði haldið að það væri stefna HSÍ að vernda unga leikmenn“ Haukur allt í öllu hjá Löwen Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Sjá meira