Boltinn hjá Íslendingum í Icesave-deilu Þorbjörn Þórðarson skrifar 30. janúar 2010 20:30
Eftir fund með fjármálaráðherra Hollands og Bretlands er boltinn hjá íslenskum stjórnvöldum, en þjóðirnar eru opnar fyrir tillögum Íslendinga að lausn á Icesave deilunni. Bretar og Hollendingar eru ekki tilbúnir að slá af kröfum sínum að svo stöddu en þeir eru tilbúnir að hlusta á allar skynsamlegar tillögur að lausn á Icesave-deilunni, segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, en hann og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sátu í gær fund í Haag í Hollandi með Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra og Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands og Myners lávarði, aðstoðarfjármálaráðherra Bretlands. Steingrímur J. Sigfússon tók undir með Bjarna í samtali við fréttastofu og sagði að þetta hefði í grófum dráttum verið efnisleg niðurstaða fundarins í Haag. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu eru Bretar og Hollendingar tilbúnir að ræða kjör og skilmála Icesave-samninganna. Það er hins vegar algjör forsenda fyrir slíkum viðræðum að það sé breið pólitísk samstaða um slíkt á Íslandi og að ekki verði hreyft við fjárhæð lágmarkstryggingarinnar í samningunum, en það er 20.887 evrur hjá hverjum innstæðueiganda. Aðspurður hvort boltinn sé hjá Íslendingum núna segir Bjarni Benediktsson að skoða þurfi núna hvað sé ásættanleg niðurstaða áður en tillaga er lausn er kynnt fyrir Bretum og Hollendingum. Bjarni Benediktsson segir að allar líkur séu á því að þrotabú Landsbankans geti greitt höfuðstól Icesave-lánsins miðað við lágmarkstrygginguna. Hann segir æskilegt að setjast niður með skilanefnd Landsbankans og endurmeta stöðu þrotabúsins. Hann segir að nú sé komið að þeirri stund að ákveða þurfi hvað sé ásættanlegt hér heima fyrir. Bjarni segir að stjórnarandstaðan sé með mjög ríkar kröfur í þeim efnum og að ríkisstjórnin verði að koma til móts við stjórnarandstöðuna. Stjórnarandstaðan muni ekki styðja breiða sátt ef hún byggist í megindráttum á kröfum Breta og Hollendinga.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira