Rhein-Neckar Löwen tapaði grannaslagnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. desember 2010 20:10 Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Löwen í kvöld. Nordic Photos / Bongarts
Göppingen vann í kvöld góðan sigur á Íslendingaliðinu Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, 35-31. Um grannaslag var að ræða en bæði lið eru Baden-Württemberg, einu af sextán sambandslöndum Þýskalands. Leikmenn Löwen voru greinilega dauðþreyttir í leiknum og áttu í raun aldrei möguleika gegn heimamönnum sem byrjuðu mjög vel og voru komnir með átta marka forystu eftir stundarfjórðung, 15-7. Staðan í hálfleik var 23-13 en lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar reyndu að bíta frá sér í síðari hálfleik. Varnarleikurinn batnaði eftir því sem á leið en markamunurinn var einfaldlega of mikill. Löwen náði að minnka muninn í fjögur mörk þegar um níu mínútur voru eftir en meiri varð spennan ekki. Íslendingarnir í Löwen skoruðu öll sín mörk í síðari hálfleik í kvöld. Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk, Róbert Gunnarsson tvö og Guðjón Valur Sigurðsson eitt. Löwen er nú átta stigum á eftir toppliði Hamburg í deildinni og verður að teljast afar ólíklegt að liðið eigi möguleika á að blanda sér í titilbaráttuna af einhverri alvöru þegar deildin hefst eftir að HM í Svíþjóð lýkur. Bæði lið eru með 28 stig í 4.-5. sæti deildarinnar.
Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Fleiri fréttir Haukur allt í öllu hjá Löwen Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Sjá meira