Handbolti

Hedin, þjálfari Noregs: Ég hefði átt að taka Ege úr markinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Steinar Ege sést hér svekkja sig yfir einu marka Íslands í leiknum.
Steinar Ege sést hér svekkja sig yfir einu marka Íslands í leiknum. Mynd/DIENER

Robert Hedin, þjálfari Norðmanna, viðurkenndi í viðtali við norska sjónvarpsstöðina TV2 að hann hefði átt að skipta um markmann í leiknum mikilvæga í gær á móti Íslendingum í milliriðli Evrópumótsins í handbolta í Austurríki. Ísland vann 35-34 og tryggði sér sæti í undanúrslitunum en Norðmenn urðu að sætta sig við sjöunda sætið.

Steinar Ege er talinn vera í hópi sterkustu markmanna heims en átti meðal annars lítil svör við hnitmiðuðum langskotum Arnórs Atlasonar og Ólafs Stefánssonar sem saman skoruðu 12 mörk fyrir utan og úr aðeins 17 skottilraunum.

„Ég veit ekki hvað hann varði marga bolta en þeir voru nokkrir. Hann var búinn að vera frábær á mótinu og ég veðjaði á það að hann færi í gang," sagði Robert Hedin við TV2.

„Ég lét Ole hita upp eftir þrettán mínútur en þá varði Steinar í tvígang og ég beið því með að skipta. Eftir á hyggja þá hefði ég átt að taka Steinar úr markinu og gefa Ole tækifærið," sagði Hedin.

Steinar Ege varð "aðeins" 11 af 46 skotum sem hann fékk á sig sem gerir 24 prósent markvörslu. Þar af varði hann aðeins 6 af 21 langskoti íslenska liðsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×