Gjaldskrárhækkanir OR ná ekki til stóriðjunnar 23. ágúst 2010 13:05
Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur sér fyrir sér verulegar gjaldskrárhækkanir til að mæta erfiðri rekstrarstöðu fyrirtækisins. Hækkunin á ekki að ná til stóriðju, þar sem orkuverð til hennar er bundið samningum Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir ekkert liggja fyrir um umfang og fyrirkomulag þessara gjaldskrárhækkana, en vonast til að myndin verði orðin mun skýrari á stjórnarfundi Orkuveitunnar á föstudag. Haraldur segist telja að Orkuveitan hafi nokkuð svigrúm til hækkana, meðal annars þar sem verð á hita og rafmagni hafi ýmist lítið eða ekkert hækkað frá árinu 2005. „Öll gögn benda til þess að þetta þurfi að vera talsvert eða veruleg hækkun. Stjórnin á ennþá eftir að fjalla um hversu há hún verði og með hvaða hætti hún kom inn. Hvort hún komi hratt inn eða dreifist yfir lengri tíma," segir Haraldur. Hann vill ekkert segja til um hversu miklar hækkanirnar verði. „Þetta eru flóknar ákvarðanir og best að geyma þær fyrir stjórn til að fjalla um áður en lengra er haldið." Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni eyðir meðalheimili nærri hundrað þúsund krónum í hita og rafmagn samanlagt árlega, svo gjaldskrárhækkun upp á eitt prósent veldur kostnaðarauka upp á þúsund krónur á ári. Þá er vægi hita og rafmagns í vísitölu neysluverðs um 2,7 prósent, svo gjaldskrárhækkun hjá Orkuveitunni gæti haft nokkur áhrif í verðbólguátt með tilheyrandi áhrifum á verðtryggð lán. Aðspurður hvort orkuverð til stóriðju verði hækkað segir Haraldur: „Það heyrir undir sérstaka samninga sem að stjórn breytir ekki einhliða á sínum fundum en fylgir öðrum mælikvörðum svo sem eins og álverði." Hann segir ekki í spilunum að gera breytingar á þessum samningum.
Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira