Enski boltinn

Vidic búinn að framlengja við Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Lokakaflinn í framhaldssögunni um framtíð serbneska varnarmannsins Nemanja Vidic var skrifaður í dag er hann krotaði undir nýjan fjögurra ára samning við Man. Utd.

Vidic hefur verið orðaður við lið á Spáni í tæplega tvö ár. Ástæðan hefur alltaf verið sögð sú að konan hans vilji flytja.

"Við erum í skýjunum að Nemanja sé búinn að skuldbinda sig við okkur til næstu ára. Nú er þessum skrípaleik um framtíð hans einnig lokið," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd.

"Nemanja er orðinn er einn besti miðvörður Evrópu og við gleðjumst yfir því að njóta krafta hans áfram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×