Leysum kirkju úr viðjum Séra Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar 18. nóvember 2010 06:00 Fátt ef nokkuð opinberar betur eðli þjóðkirkjustofnunarinnar en afstaða hennar til Fríkirkjunnar. Samkvæmt 62. gr. stjórnarskrárinnar ætti Fríkirkjan í Reykjavík að njóta stuðnings og verndar ríkisvaldsins. Þjóðkirkjan hefur komið í veg fyrir það. Fríkirkjan hefur verið evangelískt lúterskt trúfélag allt frá stofnun, skömmu eftir að við fengum trúfrelsi árið 1874. Fríkirkjan hefur frá upphafi verið íslensk grasrótarsamtök. Á meðan ríkiskirkjan var í grunninn arfleifð dansks stjórnsýslukerfis og embættismanna-apparats sem lengst af þjónaði dönskum hagsmunum, þá var Fríkirkjan virkur þátttakandi í sjálfstæðisbaráttunni. Á fyrrihluta síðustu aldar tilheyrði um helmingur Reykvíkinga Fríkirkjunni. Þjóðkirkjustofnunin leit á það sem ógnun og greip til sinna ráða. Á milli biskupsstofu og ráðuneytis var búin til lítil en gífurlega áhrifamikil reglugerð sem með nokkuð sjálfvirkum hætti tók fólk af skrá Fríkirkjunnar og setti í Þjóðkirkjuna. Fæstir tóku eftir þessu en þúsundir íslendinga færðust þannig yfir, án vitundar eða samþykkis. Trúfélagsgjöld viðkomandi streymdu nú í tug milljóna vís óhindrað í ríkiskirkjuna. Tölur um trúfélagsaðild landsmanna eru enn mótaðar af þessu. Undanfarin 13 ár hefur fjölgað mjög í Fríkirkjunni við Tjörnina og meðlimir hennar teljast nú nokkuð á tíunda þúsundið. Ef hér á landi væri raunveruleg öflug lútersk kirkja þá myndi hún fagna slíkum vexti og styðja við starfsemina. En Fríkirkjunni er refsað fyrir að hafa tekið það skref sem þjóðkirkjustofnunin hefur hvorki haft trú né djörfung til að taka. Er hvatinn vantrú?Biskupsstofu og kirkjuþingi er fullkunnugt um þá hróplegu mismunun sem Fríkirkjan býr við. En þar kjósa menn að heyra ekki, sjá ekki og tala ekki. Það er áleitin hugsun að í raun sé það vantrú sem er drifkraftur þjóðkirkjustofnunarinnar. Að þar á bæ hafi menn alls ekki trú á því að frjáls kristin kirkja geti þrifist hér á landi. Að eftir mörg hundruð ára stofnunarkristindóm sé jarðvegurinn orðin svo ófrjór að ekkert geti vaxið upp. Á það verðum við samt að láta reyna. Nýja Ísland – Ný umgjörðNýja Ísland kallar á nýja trúverðuga og lýðræðislega umgjörð lífsskoðana og trúmála. Þörfin hefur sjaldan verið brýnni en einmitt nú, þegar kreppir að og vonir okkar og væntingar hafa meira vægi en nokkurn tíma áður. Ef valdhafar vilja trausta og örugga umgjörð um okkar kristna sið og menningu þá eru til margfalt betri leiðir en sú sem nú er farin. Ómyndug ríkisrekin trúmálastofnun sem leitar sér samsvörunar ýmist í kaþólskri kirkjustofnun miðalda eða skaðlegri bókstafshyggju samtímans er þjóð okkar ekki samboðin. Við höfum ekki efni á því að kristnar innistæður meðal þjóðarinnar gjaldfalli enn frekar og rýrni með auknum hraða. Heiðarleiki, jafnræði, lýðræði og trúverðugleiki eru þau gildi sem þjóðin vill hafa að leiðarljósi. Allt eru þetta í raun kristin lútersk gildi. 62. gr. stjórnarskrárinnarÍ umræðum um endurnýjun stjórnarskrárinnar er eðlilega nokkuð fjallað um 62. greinina þar sem getið er um sérstöðu hinnar evangelísku lútersku kirkju. Sumir vilja fella þá grein niður í þeim tilgangi að skapa lýðræðislega jafnræðisumgjörð lífsskoðana og trúmála hér á landi. Það sem hæst kallar á niðurfellingu 62. gr. stjórnarskrárinnar er einmitt sú framganga þjóðkirkjustofnunarinnar sem hér hefur verið lýst! En í raun ætti það ekki að vera nauðsynlegt að fella greinina niður. Miklu nær væri að endurskoða ef ekki fella alveg úr gildi siðlausan samning ríkis og þjóðkirkjustofnunarinnar sem gerður var fyrir rúmum áratug. Það er fyrst og fremst sá samningur sem kemur í veg fyrir fullt trúfélagafrelsi hér á landi. Með endurskoðun þess samnings mætti losa hina almennu kirkju úr viðjum. Í raun felst engin mótsögn í því að kenna sig við þá Krist og Lúter annars vegar og hins vegar að beita sér fyrir því að koma á fullu trúfélaga- og lífsskoðanafrelsi. Með mótmælum sínum og siðbreytingu tengdi Martin Lúter einmitt trúna aftur við samfélagslegt réttlæti, frelsi, lýðræði og jafnrétti rétt eins og Jesús Kristur. Báðir voru þeir andvígir trúarstofnunum. Við varðveitum best okkar kristnu sögu og trúararf með lýðræðislegum jafnræðisleiðum og það er leið Krists og Lúters. Hin nýja lagalega umgjörð verður einnig að höfða til húmanista og trúleysingja því þeir eiga einnig sínar vonir og væntingar um betra líf og þeir e.t.v. frekar en margir aðrir hafa fundið þungann af mistökum trúarstofnunarinnar í aldanna rás. Að vinna að slíkri umgjörð um trú og lífsskoðanafélög er heillandi viðfangsefni. Það er í anda nýsköpunar og sprotastarfsemi og einmitt þar er Guð að finna. Sú víða og djarfa sýn er sú eina sem hæfir nútíma lýðræðissamfélagi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson Skoðun Bréf frá móður Berglind Fríða Viggósdóttir Skoðun Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Bjarni Már Magnússon Skoðun Fjöldi fyrirtækja hætta með Rapyd Oddný Björg Rafnsdóttir Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon Skoðun Fjallkonan nýja, hún Katrín Þorvaldur Logason Skoðun Forseti Íslands, Baldur Þórhallsson Friðrik Erlingsson Skoðun Njótum reynslu Katrínar Valgerður Bjarnadóttir Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal Skoðun Vill ekki lengur íslenzkan her? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Nýtt sveitarfélag Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld Stella Samúelsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Varfærnisleg fagnaðarlæti Berglind Sunna Bragadóttir skrifar Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon skrifar Skoðun Daðrað við sölu Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Rannsóknir á söfnum skapa dýrmæta þekkingu Arndís Bergsdóttr skrifar Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal skrifar Skoðun Nýsköpun innviða Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi fyrirtækja hætta með Rapyd Oddný Björg Rafnsdóttir skrifar Skoðun Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Bréf frá móður Berglind Fríða Viggósdóttir skrifar Skoðun Vill ekki lengur íslenzkan her? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hafa íslensk fjarskiptafélög málað sig út í horn? Aron Heiðar Steinsson skrifar Skoðun Á Ísland framtíð í NATO? Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Fjallkonan nýja, hún Katrín Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar Skoðun Njótum reynslu Katrínar Valgerður Bjarnadóttir skrifar Skoðun Katrínu á Bessastaði Brynja Þorbjörnsdóttir skrifar Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar Skoðun Forseti Íslands, Baldur Þórhallsson Friðrik Erlingsson skrifar Skoðun Algeng mistök við fasteignakaup og hvernig þú forðast þau Kristín Ósk Þórðardóttir skrifar Skoðun Er ungum mönnum sama um sjófólk? Kjartan Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Þörfin fyrir heimilislækna Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Um lýðræði — Þrjár spurningar til forsetaframbjóðenda Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun 30% kaupmáttaraukning með evru Guðmundur Ragnarsson skrifar Skoðun Halla Tómasdóttir yrði góður forseti Rannveig Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn má ekki fara á taugum Gísli Jökull Gíslason skrifar Skoðun „Brandarinn er búinn!“ María Heba Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Katrín kann sig Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar
Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar
Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar
Skoðun Algeng mistök við fasteignakaup og hvernig þú forðast þau Kristín Ósk Þórðardóttir skrifar