Ólafur: Hélt að mér yrði refsað fyrir að gera ekkert fyrir Ísland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2010 00:01 Ólafur Stefánsson. Mynd/Vilhelm
Ólafur Stefánsson tók við titlinum Íþróttamaður ársins í gær í fjórða sinn og gladdi gesti og sjónvarpsáhorfendur með hógværð sinni og hugsjón. Hann viðurkenndi að hafa ekki verið mikið að pæla í því að hann gæti orðið Íþróttamaður ársins annað árið í röð. „Ég hélt að mér yrði kannski refsað fyrir að hafa ekkert gert á árinu fyrir Ísland þannig að ég var ekkert að hugsa um þetta," sagði Ólafur Stefánsson. „Þetta var gott ár en kannski má segja að þetta hafi verið hálft gott ár þó svo að það sé búið að vera gaman hjá Löven líka," sagði Ólafur Stefánsson af hógværð og sinni vel þekktu gagnrýnu hugsun. Hann segir að sigurinn í Meistaradeildinni í maí standi upp úr. „Stundin í maí var afrakstur átta til níu mánaða, svita, tára og allt það. Hún var mjög gleðileg og góð en jafnframt óvænt og erfið. Ég sé ekki eftir því að hafa skipt um lið og mér finnst frábært að vera kominn til Þýskalands að reyna eitthvað nýtt og kynnast nýjum hlutum," sagði Ólafur sem segir þýsku deildina reyna á sig. „Það er meira um morgunæfingar sem er ekki skemmtilegt fyrir 36 ára skrokk. Maður venst því bara sem sýnir það að þú getur aðlagast öllu. Manskepnan er aðlögunarhæfasta veran á jörðinni og ég reyni að nýta mér það," segir heimspekingurinn. „Auðvitað gæti maður hugsað; af hverju ekki að vinna fleiri titla á Spáni? en lífið var bara orðið þannig að það hefði bara verið endurtekning. Það hefði ekki verið þess virði að taka við þessum bikar á ári ef maður er að endurtaka sig," sagði Ólafur og hann segir að Löven-liðið hafi ekki spilað nógu vel í vetur. Ólafur snýr aftur í íslenska landsliðið á EM í Austurríki eftir meira en ársfrí. „Ég hef gert rétt með því að taka mér frí frá landsliðinu fyrst ég fékk þennan bikar og liðið komst á mótið. Það er því kannski enn þá meiri pressa á mér á mótinu fyrst ég gerði ekkert til þess að koma okkur þangað. Ég verð að reyna þá að hjálpa þar til," segir Ólafur en breidd liðsins sýndi sig í keppninni. „Það komu margir góðir þættir út úr því að ég var ekki með í undankeppni EM og fyrst að við komumst þá er ég ekki með neitt samviskubit," sagði Ólafur að lokum.
Handbolti Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Íslenski boltinn Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira