Framundan er fimbulkuldi Hannes Friðriksson skrifar 20. desember 2010 05:00 Sú fjárhagsáætlun sem foystumenn meirihluta sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ hefur nú lagt fram fyrir árið 2011 er þungur áfellisdómur yfir þeirra eigin störfum og stefnu. Þar er boðaður mikill niðurskurður , auk þess sem ekki er tekið tillit til fjölda óvissuþátta sem fyririsjáanlegir eru. Fjárhagsáætlun þessi er í hróplegu ósamræmi við þær skýringar og loforð sem forystumenn sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ hafa gefið undanfarin ár. Og staðfestir í raun það sem áður hefur verið sagt. Hér stendur ekki steinn yfir steini, og fjárhagsstaða Reykjanesbæjar með þeim hætti að ekki verður lengur við unað. Meginstef fjárhagsáætlunarinnar er sparnaður, sem á næsta ári mun koma fram í nær allri þjónustu bæjarins. Þannig er ljóst að nú í fyrsta sinn veður lögbundin þjónusta undir viðmiðunarmökum , og sú lögbundna fjárhagsaðstoð til þeirra er illa standa mun verða með því lægsta á landinu öllu. Segja má að ekki sé mikill sómi falin í því. Framlög til menningarmála og íþóttastarfs verða skert stórlega, og það þrátt fyrir að á undanförnum árum hafi verið lagt til hliðar 1 milljarður króna í Manngildissjóð sem ætlað var til að sinna þeim málum. Þeim sjóð var eytt í hítina. Til greiðslu annarra skulda en til var ætlað. Og án þess að slíkt hafi nokkru sinni verið sjáanlega samþykkt í bæjarrráði eins og reglur sjóðsins mæltu þó fyrir um. Afleiðingar fjármálastjórnar forystumanna meirihluta sjálfstæðismanna undanfarin ár eru nú að koma í ljós. Framundan er fimbulkuldi. Sem skellur á íbúum Reykjanesbæjar af fullum þunga á næsta ári. Með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Skuldir bæjarsjóðs hafa fimmfaldast frá árinu 2002, úr 5 milljörðum króna í 29 milljarða króna á árinu 2010 . Án þess að séð verði að eitthvað það standi eftir ,sem sannanlega bæti hag bæjarbúa.Eftir standa skuldir sem nema um það bil 400% af tekjum bæjarins. Á bak við leiktjöldin stendur bær í rústum. Skuldir hafnarinnar sem árið 2002 voru 1,2 milljarðar eru nú tæplega 6 milljarðar króna. Án þess að fyrirséð sé að höfnin komi til með að standa undir þeirri skuld að óbreyttu og til framtíðar litið.. Lánadrottnar hafnarinnar standa í röðum til þess að fá úrlausn sinna mála, og óvíst um afdrif þeirra mála. Öllum er okkur ljóst að óskabarn forystumanna meirihlutans Fasteign er komin að fótum fram og bærinn hefur ekki lengur efni á að greiða þá leigu sem krafist er, um leið og Fasteign hefur ekki tök á að bjóða lægri leigu sem bærinn stendur undir í ljósi fjárhagstöðu sinnar . Leitað er að lausnum en ljóst að þar verður erfitt um vik sökum sameiginlegrar ábyrgðar eigendanna á skuldum fyrirtækisins. Þar vega skuldir vegna bygginga Háskólans í Reykjavík þungt, og jafnvel möguleiki á að þær gætu lent á íbúum Reykjanesbæjar í takt við eignarhluta bæjarins í Fasteign. Það er undir vilja lánadrottnanna komið. Fasteignir Reykjanesbæjar eiga við rekstrarvanda að etja, um leið og Vikingaheimar og Kalka eru komin í greiðslufall. Ljóst er sá rekstur stendur ekki undir þeim skuldum sem til hefur verið stofnað, og bæjarsjóður mun ekki geta hjálpað til. Öllum og sérstaklega meirihlutanum ætti að vera orðið ljóst að ekki verður hægt að hagræða eða skera meira niður en nú er gert ráð fyrir. Eftir standa gríðarlegar skuldir sem ljóst er af fjárhagsáætluninni að bærinn ræður ekki við. Það er ljóst að þær óraunhæfu hugmyndir forustumanna meirihlutans um 100 milljón króna hagnað af rekstri bæjarsjóðs standa hvorki undir greiðslu skuldanna eins og þær liggja nú fyrir, né því óvænta og ófyrirséða. Hvað ætla forystumenn meirihluta sjálfstæðismanna að gera við því ? Það kemur ekki fram í fjárhagsáætluninni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun