Innlent

FME hefur farið í gegnum 800 þúsund tölvupósta

Fjármálaeftirlitið hefur farið í gegnum 800 þúsund tölvupósta og viðskipti þúsund einstaklinga í rannsókn sinni á peningamarkaðssjóðum bankanna þriggja.

Peningamarkaðssjóðirnir voru stíft markaðssettir á góðærisárunum - og kynntir sem áhættulítil fjárfesting með betri ávöxtun. Sölumenn hjá bönkunum voru hvattir til að kynna sjóðina sem besta kostinn og þúsundir Íslendinga á öllum aldri lögðu sparifé sitt þangað inn.

Þegar bankarnir hrundu kom slæm staða sjóðanna upp á yfirborðið og töpuðu einstaklingar og félagasamtök miklum peningum.

Landsbankinn og Landsvaki hf., rekstraraðili sjóða bankans, viðurkenndu skömmu eftir bankahrunið að í tilteknum tilvikum hafi fjárfesting í peningamarkaðssjóði Landsbankans verið kynnt sem áhættulaus - og bað viðskiptamenn sína afsökunar.

Fjármálaeftirlitið hefur verið með málefni peningamarkaðssjóðanna til rannsóknar frá því fyrir jól í fyrra. Rannsóknin snýr bæði að fjárfestingum sjóðanna og markaðssetningu, til að mynda hvort bankarnir hafi gefið viðskiptavinum sínum rangar upplýsingar um stöðu sjóðanna. Vitað er að tugir milljarða voru teknir út úr sjóðunum í aðdraganda bankahrunsins.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Fjármálaeftirlitið farið í gegnum 800 þúsund tölvupósta í rannsókn á peningamarkaðssjóðunum og skoðað viðskipti þúsund einstaklinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×