Forstjóri Tals hafði umboð stjórnar 3. janúar 2009 16:59 Jóhann Óli Guðmundsson.
Í tilefni af ítrekuðum fullyrðingum Þórdísar Sigurðardóttur, formanns stjórnar IP Fjarskipta (Tals) í fjölmiðlum um að forstjóri Tals, Hermann Jónasson, hafi ekki haft umboð stjórnar félagsins til að semja við Símann um aðgang að dreifikerfi þeirra, vill Jóhann Óli Guðmundsson stjórnarmaður Tals koma eftirfarandi á framfæri. Á stjórnarfundi Tals þann 11. desember sl. var eftirfarandi fært til bókar: „HJ upplýsti stjórnina um að Síminn hefði sagt upp reikisamningi þes s við Tal. Fundur hefði átt sér stað með PFS (póst- og fjarskiptastofnun) þar sem PFS lagði áherslu á það við HJ að hann myndi leita allra leiða við lausn á málinu bæði hjá Símanum og Vodafone. Hj upplýsti stjórnina að hann væri búinn að senda bréf á bæði félögin (Vodafone og Símann) og að búið væri að gera viðauka við samning Vodafone með fyrirvara sem gerði þeim kleift að reyna að fá undanþágu frá reglum PFS með því að skilgreina Tal sem viðskiptavin inn á kerfin sín. HJ sagði að staða Tals væri óviðunandi þar sem við blasir að viðskiptavinir Tals verða sambandslausir við hluta af landinu frá og með 1. janúar 2009 ef ekki næst að leysa málið með Vodafone eða samningi við Símann fyrir þann tíma. HJ var falið að leysa málið á næstu dögum með hag félagsins og viðskiptavina að leiðarljósi." Á fundi stjórnar Tals hinn 30. desember sl. höfðu engar athugasemdir verið gerðar við fyrrgreinda fundargerð og hafa raunar ekki enn komið fram. Þórdís Sigurðardóttir stjórnarfomaður hafði þó næg tækifæri allt frá fundinum 11. desember til að gera það. Það er því með öllu marklaust þegar hún heldur því fram að forstjóri Tals hafi ekki haft umboð til að semja við Símann. Þórdís Sigurðardóttir hefur í fjölmiðlum í dag fullyrt að hægt hefði verið að tryggja fullan aðgang viðskiptavina Tals að farsímakerfi landsins með öðrum leiðum en með samningi við Símann. Vodafone hafði kynnt sínar hugmyndir að lausn á málinu en það var mat forstjóra, eftir að hafa ráðfært sig við lögmenn, að símanúmaraflutningur frá Tali til Vodafone, stæðist ekki lög. Því til viðbótar má nefna að Hermann Jónasson fékk það staðfest í tölvupósti frá Póst- og fjarskiptastofnun að Vodafone hefði ekki verið í neinu sambandi við stofnunina varðandi þessa lausn né aðrar á reikivandamálum Tals. Íslendingar þekkja það öðrum fremur hve mikilvæg landsdekkandi og örugg GSM þjónusta í strjálbýlu landi getur verið enda ótalmörg dæmi um að gott farsímasamband hefur skipt sköpum við björgun mannslífa. Því var óásættanlegt að horfast í augu við þá staðreynd að viðskiptavinir Tals yrðu nú um áramót, að öllu óbreyttu, sambandslausir á stórum landsvæðum. Það sjá allir ábyrgir menn að við því varð að bregðast án tafar. Auðsýnt má því vera að forstjóri Tals hafði ekki önnur ráð innan ramma laga en taka tilboði Símans sem að auki var afar hagstætt og fól í sér A D landsdekkandi reikiþjónustu, lægri verð og aðgengi að 3-G þjónustu Símans svo fátt eitt sé upp talið. Þessi samningur við Símann breytir ekki því að Tal getur með reglulegu millibili boðið þjónustuna út og tekið hagstæðasta tilboðinu á hverjum tíma, þ.m.t. frá Vodafone eða öðrum farsímafyrirtækjum. Þannig getur Tal áfram tryggt sjálfstæði sitt sem leiðandi lággjalda farsímafyrirtæki í landinu.
Tengdar fréttir Forstjóri Tals: Óþægilegt að láta öryggisvörð fylgja sér út Hermanni Jónassyni forstjóra Tals var sagt upp störfum 30. desember sl. Ástæðan er sögð sú að hann hafi gert samning við Símann án þess að hafa samráð við stjórn fyrirtækisins en annar samningur var í gildi við Vodafone. Hermann segist eingöngu hafa haft hagsmuni viðskiptavina Tals að leiðarljósi og vísar því á bug að stjórnin hafi ekki vitað af samningnum. Öryggisvörður og lögfræðingur stóðu yfir honum þegar hann yfirgaf vinnustað sinn. „Óþægileg tilfinning," segir Hermann sem íhugar að leita réttar síns. 3. janúar 2009 12:00 Forstjóri rekinn eftir samning við Símann „Tal hafði enga aðra leið,“ segir Hermann Jónasson, sem á þriðjudag var fyrirvaralaust vikið úr starfi forstjóra hjá Tali eftir að hafa gengið frá samningi um afnot Tals af farsímakerfi Símans. 3. janúar 2009 04:00 Mest lesið Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Innlent Lést í sprengingunni Innlent „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innlent Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Innlent Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Erlent Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent Fleiri fréttir Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gefa ekkert upp um mál tveggja barna á Múlaborg Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Sjá meira
Forstjóri Tals: Óþægilegt að láta öryggisvörð fylgja sér út Hermanni Jónassyni forstjóra Tals var sagt upp störfum 30. desember sl. Ástæðan er sögð sú að hann hafi gert samning við Símann án þess að hafa samráð við stjórn fyrirtækisins en annar samningur var í gildi við Vodafone. Hermann segist eingöngu hafa haft hagsmuni viðskiptavina Tals að leiðarljósi og vísar því á bug að stjórnin hafi ekki vitað af samningnum. Öryggisvörður og lögfræðingur stóðu yfir honum þegar hann yfirgaf vinnustað sinn. „Óþægileg tilfinning," segir Hermann sem íhugar að leita réttar síns. 3. janúar 2009 12:00
Forstjóri rekinn eftir samning við Símann „Tal hafði enga aðra leið,“ segir Hermann Jónasson, sem á þriðjudag var fyrirvaralaust vikið úr starfi forstjóra hjá Tali eftir að hafa gengið frá samningi um afnot Tals af farsímakerfi Símans. 3. janúar 2009 04:00