Oddaleikir í báðum einvígunum í 1. deild karla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2009 18:30 Robert Hodgson er spilandi þjálfari hjá Val. Mynd/Arnþór
Það er mikil spenna í baráttunni um síðasta sætið sem er laust í Iceland Express deild karla í körfubolta á næsta ári. Úrslitakeppni 1. deildar karla er í fullum gangi og í kvöld verða spilaðir oddaleikir í báðum undanúrslitaeinvígunum. KFÍ jafnaði metin á móti Valsmönnum með því að vinna nokkuð öruggan 11 stiga sigur, 70-59, fyrir vestan. Valur vann fyrri leikinn 75-69. Daniel Kalov hefur verið að spila vel fyrir KFÍ en hann er með 16,0 stig og 14,5 fráköst að meðaltali í þessum tveimur leikjum. Hjá Val er þjálfarinn Robert Hodgson búinn að skora 19,5 stig og taka 12,5 fráköst í þessum tveimur leikjum. Haukar þurftu að vinna á útivelli til þess að tryggja sér oddaleik á móti Fjölni og það tókst þegar liðið vann 73-70 sigur í Grafarvogi. Þetta var þriðji leikur liðanna í vetur sem vinnst á 3 stigum eða minna og það stefnir því í svakalega spennu í oddaleiknum á eftir. Kristinn Jónasson var neð 16 stig og 12 fráköst hjá Haukum í sigrinum en Fjölnismaðurinn Ægir Þór Steinarsson hefur leikið vel í fyrstu tveimur leikjunum þar sem hann er með 18,5 stig, 9,5 fráköst og 7,0 stoðsendingar að meðaltali í þessum tveimur leikjum. Hamar vann deildarkeppnina og er því komið upp í úrvalsdeild en eins og kunnugt er þá féllu lið Skallagríms og Þórs frá Akureyri úr Iceland Express deildinni á dögunum. Það lið sem vinnur fyrr tvo leiki í lokaúrslitunum fylgir Hamar upp. Oddaleikirnir fara fram í kvöld, Haukar taka á móti Fjölnismönnum á Ásvöllum klukkan 19.15 og klukkan 20.00 hefst leikur Vals og KFÍ í Vodafone-höllinni.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Í beinni: Vestri - Fram | Úrslitaleikur undir Íslenski boltinn „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Golf „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira