Dómsmálaráðuneytið fellst á framsal Hosmany til Brasilíu 15. desember 2009 20:16 Hosmany Ramos verður framseldur til Brasilíu að öllu óbreyttu.
Dómsmálaráðuneytið hefur fallist á framsalsbeiðni brasilískra yfirvalda varðandi Hosmany Ramos en úrskurðurinn hefur þegar verið kærður til Héraðsdóms Reykjavíkur. Úrskurðurinn var samþykktur þann 10. desember, stuttu eftir að í ljós kom að hælisbeiðni Ramos hér á landi var hafnað. Enginn framsalssamningur er á milli landanna, engu að síður féllst ráðuneytið á framsal Hosmanys sem flúði frá Brasilíu síðustu jól. Hann kom hingað til lands frá Noregi í sumar. Hosmany hefur tvívegis hlotið þunga dóma í Brasilíu. Árið 1998 var hann dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir rán, mannrán og mótþróa við handtöku. Á Þorláksmessu í fyrra fékk Hosmany leyfi til þess að vera heima yfir jólin en snéri ekki aftur til afplánunar. Skömmu síðar var gefin út handtökuskipun á hendur honum. Það var síðan 9. ágúst sem Hosmany var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þegar hann framvísaði vegabréfi bróður síns. Síðan þá hefur hann setið í gæsluvarðhaldi. Komist dómstólar að þeirri niðurstöður að ekki megi framselja Hosmany til Brasilíu þá er mögulegt að hann verði sendur til Frakklands en það var fyrsta landið sem tilheyrir Schengen sem hann kom til frá Suður-Ameríku.
Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Fleiri fréttir Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig Sjá meira