Lögreglumenn íhuga að grípa til aðgerða 10. ágúst 2009 06:15 Lögreglumenn hafa lýst því hversu mikið mótmælin í upphafi árs fengu á þá og fjölskyldur þeirra.Fréttablaðið/pjetur
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa rætt það sín á milli að grípa til aðgerða gegn yfirstjórn embættisins ef ekki verður hætt við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar sem taka eiga gildi 1. september. Mögulegar aðgerðir gætu til dæmis falist í því að neita að taka aukavaktir nema þeir verði beinlínis skyldaðir til þess og svara ekki í síma þegar þeir eru á frívöktum. Fyrirhugaðar breytingar fela í sér að fimm hverfalögreglustöðvar sem þegar hefur verið komið á fót öðlast enn frekara sjálfstæði. Við þetta eru lögreglumenn afar ósáttir. Þeir segja að með breytingunni sé aukið við yfirbyggingu á kostnað almennra lögreglumanna, sem sé skref aftur á bak. Þá á einnig að taka gildi nýtt vaktakerfi sem lögreglumenn hafa mótmælt harðlega. Arinbjörn Snorrason, formaður Lögreglufélagsins í Reykjavík, segist hafa heyrt af því að menn séu farnir að ræða hvernig unnt sé að bregðast við. Lögreglumenn hafi ekki verkfallsrétt en annars konar aðgerðir hafi borið á góma. Hann segir félagið hins vegar ekki hvetja til slíkra aðgerða, heldur einbeiti sér að því að þrýsta á að yfirstjórn embættisins og ráðamenn sjái að sér og beiti sér fyrir því að af breytingunum verði ekki. Arinbjörn segir óánægjuna svo víðtæka að vantrausti hafi verið lýst yfir á störf Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra, falli hann ekki frá áformunum um skipulagsbreytingarnar. Þá hefur dómsmálaráðherra einnig gert lögreglu að skera niður og hefur mætt miklum mótbárum lögreglumanna, sem telja sig þegar allt of fáliðaða. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, hefur sagt að á höfuðborgarsvæðinu einu þyrfti að tvöfalda mannskapinn ef vel ætti að vera. Arinbjörn bendir einnig á að væntanlegar breytingar í borginni séu í raun algerlega á skjön við hugmynd dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar á lögreglunni, sem snúast um að gera landið allt að einu lögregluumdæmi, en starfshópur á vegum ráðuneytisins vinnur nú að því að móta þá tillögu. Í henni felist að auka miðstýringu og fækka í yfirstjórn og hún geti hugnast lögreglumönnum ágætlega ef um hana næst samstaða. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira