Innlent

Lögreglumenn íhuga að grípa til aðgerða

Lögreglumenn hafa lýst því hversu mikið mótmælin í upphafi árs fengu á þá og fjölskyldur þeirra.Fréttablaðið/pjetur
Lögreglumenn hafa lýst því hversu mikið mótmælin í upphafi árs fengu á þá og fjölskyldur þeirra.Fréttablaðið/pjetur

Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa rætt það sín á milli að grípa til aðgerða gegn yfirstjórn embættisins ef ekki verður hætt við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar sem taka eiga gildi 1. september. Mögulegar aðgerðir gætu til dæmis falist í því að neita að taka aukavaktir nema þeir verði beinlínis skyldaðir til þess og svara ekki í síma þegar þeir eru á frívöktum.

Fyrirhugaðar breytingar fela í sér að fimm hverfalögreglustöðvar sem þegar hefur verið komið á fót öðlast enn frekara sjálfstæði. Við þetta eru lögreglumenn afar ósáttir. Þeir segja að með breytingunni sé aukið við yfirbyggingu á kostnað almennra lögreglumanna, sem sé skref aftur á bak. Þá á einnig að taka gildi nýtt vaktakerfi sem lögreglumenn hafa mótmælt harðlega.

Arinbjörn Snorrason, formaður Lögreglufélagsins í Reykjavík, segist hafa heyrt af því að menn séu farnir að ræða hvernig unnt sé að bregðast við. Lögreglumenn hafi ekki verkfallsrétt en annars konar aðgerðir hafi borið á góma. Hann segir félagið hins vegar ekki hvetja til slíkra aðgerða, heldur einbeiti sér að því að þrýsta á að yfirstjórn embættisins og ráðamenn sjái að sér og beiti sér fyrir því að af breytingunum verði ekki.

Arinbjörn segir óánægjuna svo víðtæka að vantrausti hafi verið lýst yfir á störf Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra, falli hann ekki frá áformunum um skipulagsbreytingarnar.

Þá hefur dómsmálaráðherra einnig gert lögreglu að skera niður og hefur mætt miklum mótbárum lögreglumanna, sem telja sig þegar allt of fáliðaða. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, hefur sagt að á höfuðborgarsvæðinu einu þyrfti að tvöfalda mannskapinn ef vel ætti að vera.

Arinbjörn bendir einnig á að væntanlegar breytingar í borginni séu í raun algerlega á skjön við hugmynd dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar á lögreglunni, sem snúast um að gera landið allt að einu lögregluumdæmi, en starfshópur á vegum ráðuneytisins vinnur nú að því að móta þá tillögu. Í henni felist að auka miðstýringu og fækka í yfirstjórn og hún geti hugnast lögreglumönnum ágætlega ef um hana næst samstaða.

stigur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×