Viðskipti innlent

Exista bíður niðurstöðu málaferla Kaupþings

Exista hefur á undanförnum vikum kannað ítarlega grundvöll málaferla í Bretlandi vegna greiðslustöðvunar Kaupthing Singer & Friedlander, dótturfélags Kaupþings banka. Nú er ætlunin að bíða eftir niðurstöðu úr málsókn Kaupþings gegn breskum stjórnvöldum.

Exista var stærsti hluthafi bankans þegar Kaupthing Singer & Friedlander var yfirtekinn af breskum stjórnvöldum og hefur félagið þegar lagt verulegar fjárhæðir í undirbúning málsins.

Í tilkynningu segir að í ljósi þess að Kaupþing banki hefur afráðið að höfða mál gegn breskum stjórnvöldum, hyggst Exista bíða niðurstöðu málaferla Kaupþings áður en ákvörðun verður tekin um frekari málarekstur. Exista hefur stutt Kaupþing við undirbúning málsins og veitti bankanum aðgang að öllum gögnum sem unnin hafa verið fyrir Exista af breskum lögmönnum félagsins.

Það er mat Exista að skynsamlegast sé að Kaupþing, eigendur gamla Kaupþings og íslensk stjórnvöld sameini krafta sína í að fá úr því skorið hver réttur bankans er vegna aðgerða breskra stjórnvalda gagnvart Kaupthing Singer & Friedlander. Hugsanleg skaðabótakrafa mun svo ráðast af niðurstöðu þess málareksturs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×