Lækkandi olíuverð er 5 milljarða kr. búbót fyrir útgerðina 20. janúar 2009 13:31
Lækkandi heimsmarkaðsverð á olíu eru góðar fréttir fyrir útgerðina hérlendis. Áætla má að ef olíuverð helst út árið á svipuðum slóðum og það er í dag sé um 5 milljarða kr. búbót að ræða fyrir útgerðina. Friðrik Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir að verðþróunin á olíumörkuðunum undanfarnar vikur og mánuði sé vissulega gleðiefni fyrir útgerðina. "Þetta léttir hjá okkur róðurinn," segir Friðrik. Þá má einnig nefna að þegar olíuverðið náði hámarki síðasta sumar lögðust veiðar á djúpslóð að mestu niður, eins og t.d. kolmunnaveiðar, sökum þess að olíukostnaðurinn var kominn í um 40% af úthaldinu. Nú geta skip sótt að nýju á þessi mið sem kemur sér vel meðan óvissa ríkir um hvort loðnuveiðar verða leyfðar að nýju eða ekki. Sveinn Hjörtur Hjartarsson hagfræðingur LÍÚ hefur reiknað út fyrir Fréttastofuna hve mikil búbót lækkandi olíuverð er fyrir útgerðina. Sveinn segir að meðalverðið á gasolíu hafi verið tæplega 895 dollarar á tonnið í fyrra. Í dag er þetta verð 426,5 dollarar á tonnið. Reikna má með að olíukostnaður fiskiskipaflotans í fyrra hafi numið 17,6 milljörðum kr. Miðað við verðið á oliunni í dag má áætla að þessi kostnaður í ár nemi 12,9 milljarðar kr. sem er tæplega 5 milljarða kr. viðsnúningur eða 26,7% lækkun á þessum kostnaðarlið. Fram kemur í útreikningum Sveins Hjartar að áætla má að olíukostnaðurinn verði um 13,5% af tekjum útgerðarinnar í ár. Til samanburðar má nefna að þegar olíuverðið náði hámarki s.l. sumar var áætlað að kostnaðurinn yrði yfir 20% af tekjunum. "Hér er því um töluverð umskipti að ræða ef þessar áætlanir ganga eftir," segir Sveinn Hjörtur.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira